Jöfnun á námskostnaði
Miðvikudaginn 08. mars 1989

     Menntamálaráðherra (Svavar Gestsson):
    Ég leyfi mér að þakka hv. þingnefnd fyrir afgreiðsluna á þessu máli. Ég tel að það skipti mjög miklu máli að fá lendingu í þetta mál áður en farið verður að undirbúa fjárlög fyrir árið 1990. Þau mál sem þetta frv. snertir hafa að því er varðar árið 1989 þegar verið afgreidd eða eru í afgreiðslu og þar var í meginatriðum farið eftir svipuðum grundvallarsjónarmiðum og þeim sem fram koma í þessu lagafrumvarpi vegna þess að þar eru tekin upp hliðstæð ákvæði og nú eru og hafa um skeið verið í reglugerðum um jöfnun námskostnaðar.