Jöfnun á námskostnaði
Miðvikudaginn 08. mars 1989

     Menntamálaráðherra (Svavar Gestsson):
    Herra forseti. Ég er sammála þeirri athugasemd sem fram kom hjá hv. 3. þm. Norðurl. v. og hinum almennu forsendum hennar. Þær þekki ég líka. Ég tel hins vegar að í þessari grein sé ekki átt við tekjuöflun af því tagi sem hann var að tala um heldur tekjuöflun sem menn hafa á hendi samhliða námi. Hér er m.a. átt við það ef menn stunda nám að takmörkuðu leyti en eru í störfum, kannski fullu starfi eða svo til fullu starfi. Ég hygg að þessi skerðingargrein eins og hún er sett hér eigi ekki að koma fram með þeim hætti sem hv. þm. lýsti áðan. Ég er fyrir mitt leyti tilbúinn að láta athuga málið á milli umræðna, en þetta er sennilega alveg samhljóða grein og var í gildandi lögum.
    Ég tel að það sé óhjákvæmilegt hins vegar að hafa í lögunum ákvæði sem heimilar nefndinni að fella niður styrki til þeirra sem eru með mikla peninga handa á milli, jafnvel þó að þeir gætu fengið styrki samkvæmt lögunum að öðru leyti. Slík heimild verður að vera til. Spurningin er aðeins um það með hvaða hætti hún yrði orðuð, sú heimild. Ég er tilbúinn að beita mér fyrir því hér á milli 2. og 3. umr., ef mönnum sýnist svo, að skoða málið aðeins nánar og vita hvort við getum fundið ásættanlegt orðalag sem rær fyrir þá vík sem hv. þingmaður nefndi og ástæða er til að taka tillit til.