Vaxtalög
Miðvikudaginn 08. mars 1989

     Frsm. 2. minni hl. fjh.- og viðskn. (Kristín Halldórsdóttir):
    Herra forseti. Það var aðeins vegna þess að ég gleymdi að koma inn á þessar brtt. sem hv. síðasti ræðumaður var að mæla fyrir og við kvennalistakonur höfum ákveðið að styðja þá brtt. sem varðar vextina. Enda þótt við höfum vissar efasemdir um að þetta ákvæði stuðli að einhverju kraftaverki í þeirri viðleitni að keyra niður vextina þá er markmiðið gott og sakar sannarlega ekki, og við höfum ákveðið að styðja það.