Hagvarnaráð
Fimmtudaginn 09. mars 1989

     Forsætisráðherra (Steingrímur Hermannsson):
    Virðulegi forseti. Eins og fram kom hjá hv. fyrirspyrjanda starfar hagvarnaráð á grundvelli laga nr. 85/1985, um almannavarnir, og reyndar kom það í minn hlut að skipa hagvarnaráð í september 1986 samkvæmt þeim lögum. Með þeim lögum voru lög um hagvarnir felld inn í heildarlöggjöf um almannavarnir og að tillögu þingkjörinnar nefndar sem Alþingi skipaði 1982 var það reyndar gert.
    Ástæða þeirrar tilhögunar að sameina lög um almannavarnir og hagvarnir er að ekki er unnt að gera skýran greinarmun á almannavörnum og hagvörnum á mörgum sviðum vegna mikillar skörunar á verkefnum. Verkefni hagvarnaráðs er að vera ríkisstjórninni til ráðuneytis um hagvarnir, en eins og ég hygg að hafi einnig komið fram hjá hv. fyrirspyrjanda sitja í hagvarnaráði ráðuneytisstjórar allra ráðuneyta og skal ráðuneytisstjóri forsrn. eða staðgengill hans vera formaður hagvarnaráðs.
    Með þessari skipan var stefnt að því að það hefði á hendi samræmingu og heildaryfirsýn yfir hagvarnaverkefni, en hins vegar var gert ráð fyrir því að þau yrðu leyst frá degi til dags, getum við sagt, með því að koma á fót sérstakri skrifstofu eða með því að fela Almannavörnum ríkisins að annast það verkefni. Strax eftir að hagvarnaráð hafði verið skipað fóru fram viðræður við Almannavarnir ríkisins og var niðurstaðan sú að skynsamlegast væri að fela Almannavörnum ríkisins að annast þetta verkefni og var það gert.
    Um Almannavarnir mætti hafa allmörg orð. Almannavarnir voru settar á fót 1972 og hafa því starfað í 16 ár. Hjá Almannavörnum voru fjórir starfsmenn í upphafi og enn eru aðeins fjórir starfsmenn. Ég held að það megi hins vegar segja að Almannavarnir hafi þrátt fyrir þetta litla starfslið unnið hið ágætasta verk og hefur reyndar sums staðar þótt vera til fyrirmyndar. M.a. hafa Almannavarnir gert neyðaráætlanir fyrir 59 almannavarnanefndir og almannavarnasvæði um landið og hefur verið eftir því skipulagi tekið, m.a. erlendis. Hitt er svo annað mál að Almannavarnir hafa farið fram á fjárveitingu til þess að mega ráða starfsmann sem annist það verkefni sem hagvarnaráði er falið, þ.e. gera úttekt og fylgjast með því að til séu sem víðast á landinu þær birgðir sem þurfa að vera í því tilfelli að hér verði neyðarástand og þeirri fjárveitingu hefur alltaf verið hafnað af fjárveitingavaldinu. Engu að síður hafa Almannavarnir gert skyndiúttekt á slíku, t.d. þegar hafís hefur nálgast landið, en það er skoðun formanns hagvarnaráðs og framkvæmdastjóra Almannavarna að þarna þurfi að koma heimild til þess að ráða einn starfsmann sem hafi það verkefni að fylgjast með að birgðir séu ætíð til staðar á nauðsynlegum stöðum. Og reyndar held ég að staðreyndin sé sú að Almannavarnir þyrftu að hafa fleiri starfsmenn en þær hafa nú. Einn starfsmaður til viðbótar gæti því bæði sinnt þessu verkefni hagvarnaráðs og fyllt upp í ýmislegt sem Almannavarnir hafa haft áhuga á að gera.

    Í reynd er ekki meira um þetta að segja, virðulegi forseti. Þó vil ég segja það að lokum að ég tel að þessi fsp. hafi verið þörf og ég hef aðeins skoðað þetta mál og ég hef komist að þeirri niðurstöðu að ástæða sé til að endurskoða þetta. Ég hef ekki trú á svona fjölmennum nefndum eins og hagvarnaráð er og ég hygg að skynsamlegra væri að fela Almannavörnum ríkisins þetta verkefni og það væri ákaflega vel komið þar og spurning hvort á að halda þessari skipan með fjölmennu hagvarnaráði.