Hjörleifur Guttormsson:
Virðulegur forseti. Ég vil taka undir þau sjónarmið hæstv. forsrh. um varnagla varðandi þá efnahagsáætlun Norðurlanda sem var til meðferðar á þingi Norðurlandaráðs og fjmrh. hæstv. gerði sérstakan fyrirvara við þegar málið var til meðferðar í ráðherranefnd á vegum Norðurlanda.
Ég tel að mál þetta þurfi allt mikillar gaumgæfingar við og bendi á að á vegum þingsins starfar nú sérstök þingkjörin nefnd að því að athuga stöðu mála, sérstaklega með tilliti til þróunar í Evrópu, í Evrópubandalaginu og þá auðvitað einnig í EFTA-ríkjunum og á Norðurlöndum.
Ég tel í raun óeðlilegt að verið sé að taka á þessum málum í sambandi við almennar efnahagsaðgerðir hér heima fyrir eins og viðleitni var til af hálfu ríkisstjórnarinnar í byrjun febrúar og það á sama tíma og verið er að fara yfir þessi mál í ljósi þess fyrirvara sem gerður hafði verið á vegum þingkjörinnar nefndar. Ég vona að menn uni þeim vinnubrögðum að unnið verði að þessum málum af vandvirkni þannig að menn stígi hér engin víxlspor sem gætu orðið til óheilla fyrir okkar efnahagslíf og okkar sérstæðu aðstæður. Jafnnauðsynlegt er auðvitað að vandlega verði unnið og hratt í þessum málum því þróunin er býsna ör á alþjóðavettvangi.