Kristinn Pétursson:
Hæstv. forseti. Mér er spurn hvað hæstv. forsrh. átti við hér áðan með því að það þyrfti að styrkja íslenska peningakerfið áður en auka mætti frjálsræðið í samskiptum Norðurlanda. Hvað á hæstv. forsrh. við með því að það þurfi að styrkja það? Á hann við að það þurfi styrkja gráa markaðinn eða hvað er það sem hann á við? Það skyldi nú aldrei vera að þessir menn vildu ekki sjá sannleikann með því að opna kerfið því þá kæmi nefnilega sannleikurinn í ljós um gæði íslenskrar hagstjórnar. Það er ekki víst að allir vilji fá að sjá hvernig þau eru um þessar mundir. Úr því að menn eru nýkomnir frá Stokkhólmi, komu þeir þá ekki við í kauphöllinni og skoðuðu frjálshyggjuna í Svíaríki? Ég tel að það hefði verið mjög heppilegt að hæstv. ráðherrar hefðu komið þar við og kíkt á frjálshyggjuna í ríki þessara sem eru kallaðir til vinstri í pólitíkinni. Eða erum við einhverjir eftirbátar annarra Norðurlanda í sambandi við eignir eða eru Íslendingar svona illa settir? Ég veit ekki betur en að íslensk þjóð sé stórkostlega auðug þjóð. Eru menn svona hræddir við sannleikann?
Ég hygg að ef opnað yrði fyrir frjálsari viðskipti milli Norðurlanda mundi það koma í ljós fyrst af öllu að allt kjaftæðið í kringum þessa frjálshyggju er marklaust. Það er sennilega staðreynd málsins og því er mjög þýðingarmikið, af því að verið er að ræða þessi mál, að við fáum svör frá hæstv. forsrh. Hvað á hann við með því að styrkja íslenska peningakerfið? Hvað er það sem maðurinn á við?