Kristinn Pétursson:
Hæstv. forseti. Ég ætla aðeins að gera athugasemd við að það er ekki rétt hjá hæstv. forsrh. að ég sé svona rosalega ánægður með íslenskt bankakerfi eins og hann hélt fram hér áðan. Í öðru lagi langar mig til að koma fram með þá athugasemd í þessari umræðu vegna þess að honum finnst svo góð stjórn á peningamálum í Svíþjóð. Sænska ríkisstjórnin hefur nýverið gert seðlabankann sænska algerlega sjálfstæðan og óháðan stjórnvöldum. Á hann við að það sé svo góð stjórn á peningamálum í Svíþjóð?