Guðmundur H. Garðarsson:
Virðulegi forseti. Ég skal ekki orðlengja mikið við þessa umræðu en ég tók ekki eftir því hvort hæstv. bankamálaráðherra var hér inni áðan þegar hæstv. forsrh. tók til máls. Það var mjög athyglisvert að fylgjast með því hve ráðherrarnir voru ósammála. Forsrh. sagði eitt, utanrrh. annað og viðskrh. það þriðja. En það sem ég vildi gjarnan fá skýrt, vegna þess að ég hef ástæðu til að halda að hæstv. viðskrh. og bankamálaráðherra séu að reyna að þróa það í sambandi við samruna banka á Íslandi að hér komi erlendur banki inn í landið, þ.e. banki sem hefur aðsetur á Norðurlöndunum, hvort viðskrh. sé sammála því sem hæstv. forsrh. sagði um að hingað kæmi enginn erlendur banki inn í landið. ( Forsrh.: Það sagði ég ekki.) Það sagði hæstv. forsrh. ( Forsrh.: Ekki við núverandi aðstæður.) Ekki við núverandi aðstæður, en þá vil ég spyrja og kannski vill hæstv. forsrh. svara því: Hvenær breytast núverandi aðstæður þannig að hæstv. bankamálaráðherra geti sagt: Kannski á morgun því nú hafa aðstæður breyst? Það gengur ekki lengur að stjórnmálamenn tali svona. Það passaði mér ekki í dag en við skulum sjá til á morgun --- og svo gera þeir nákvæmlega það sem þeir eru búnir að afneita þriðja daginn. Svona stjórnmál ganga ekki lengur á Íslandi. Ég krefst svars við því hjá hæstv. bankamálaráðherra hvort þetta, ,,núverandi aðstæður``, gildi í dag, á morgun eða meðan þessi hæstv. ríkisstjórn situr að völdum.