Þjónusta við heyrnarlausa í sjónvarpi
Fimmtudaginn 09. mars 1989

     Fyrirspyrjandi (Þórhildur Þorleifsdóttir):
    Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svör hans. Þau eru sjálfsagt ekki afdráttarlausari en efni standa til eins og málum er komið. Réttilega segir hann að málefni þessa hóps eða annarra hópa sem að einhverju leyti eiga undir högg að sækja eru auðvitað ekki í fyrirrúmi þjónustu svona stofnana og má í því sambandi benda á annan hóp, sem er að vísu sýnu stærri í neytendahópi sjónvarps, sem eru börn. Þar er líka annar hópur sem einmitt situr á hakanum vegna þess að hann getur ekki sótt sinn rétt í gegnum m.a. þjóðarsálir og meinhorn og hvað þetta heitir allt þar sem þjóðin er að kvarta. Ekki hringja börnin þangað.
    En því miður sýnist mér á svörum ráðherra að úr þeirri rýrnun sem hefur orðið á þjónustu við þennan hóp, þ.e. heyrnarskerta, sé ekki í ráði að bæta, þ.e. að táknmálsfréttir hafa verið styttar verulega frá því sem var og virðist ekki í sjónmáli að það eigi að bæta úr því aftur. Auðvitað skil ég að ef dagskrá sjónvarps og hvernig henni er hagað er í endurskoðun sé ekki hægt að tímasetja nákvæmlega svona fréttir, en það er samt brýnt að taka til athugunar að þær fréttir sem standa þessum hópi til boða séu tengdar almennum fréttum því að vissulega geta þeir nýtt sér hluta af þeim líka og engin ástæða til að ætla þessu fólki fremur en öðru fullorðnu fólki að setjast niður á tíma sem er ætlaður börnum í sjónvarpi en ekki endilega fullorðnu fólki.
    Það er að störfum núna nefnd sem er að endurskoða útvarpslög og gera tillögur til úrbóta og ég vona svo sannarlega að hæstv. menntmrh. beini því til nefndarinnar, hafi hann ekki þegar gert það, að finna þessum hópi stoð í nýrri lagasetningu því að hann hefur lög að mæla þegar hann segir að líklega dugi ekkert minna en lagasetning til að verja rétt svo veiks og einangraðs hóps sem heyrnarlausir og heyrnarskertir eru.