Skólabúðir í Reykjaskóla
Fimmtudaginn 09. mars 1989

     Fyrirspyrjandi (Þórhildur Þorleifsdóttir):
    Virðulegur forseti. Á sl. ári var gerð að mínu mati athyglisverð tilraun í Reykjaskóla við Hrútafjörð. Þar voru reknar skólabúðir fyrir nemendur á grunnskólaaldri. Hvernig tilhögun var þar má kynna sér í bæklingi sem menntmrn. gaf út og ber nafnið Skólabúðir í Reykjaskóla. Þar eru ýmsar athyglisverðar upplýsingar, bæði um aðdraganda, markmið og sögu skólabúða í Norður-Evrópu og síðan lýst aðstöðu í skólanum og svo þeim verkefnum sem nemendum er ætlað að takast á við í þessum skólabúðum. Má þar m.a. nefna fjöruna, könnun á lífríki fjörunnar, flóði og fjöru o.s.frv., gönguferðir og náttúruskoðun, ýmsa ratleiki, það að róa, sögu og samfélag, að laga sig að veðri, íþróttir, félagsstarfsemi ýmiss konar, föndur, skyndihjálp, heimilisfræði, stjörnuskoðun, líf í heimavist og að endingu er um að ræða dagbók, ferðasögu og sendibréf og ýmislegt sem þau eiga síðan að vinna úr þessu.
    Nú vill svo til að ég hef reynslu af þessum skólabúðum. Ég var ekki send þangað sjálf en tíu ára sonur minn. Hann dvaldi þarna í viku og átti varla orð til að lýsa ánægju sinni þegar heim kom. Hann talaði borginmannlega um veðurfar, hita sjávar og lífríki fjörunnar, örnefni í austur- og vestursýslunni og fleira af því tagi, auk þess sem hann gat upplýst okkur í fjölskyldunni um að í kirkjunni á Þingeyrum væri að finna fleiri glugga en í nokkurri annarri kirkju á Íslandi. Þar að auki sagði hann okkur að þarna hefðu verið skrifaðar merkar bækur á öldum áður og um það spunnust langar umræður við matborðið.
    Ég get ekki varist því að hugsa með mér hve mikið auðveldara það hlyti að vera að kenna eða koma ýmsum fróðleik til skila til barnanna með þessum áþreifanlega hætti en reyna að kenna það eingöngu af bók, umhverfisfræðsla t.d. úti í náttúrunni, náttúrufræði af ýmsu tagi og landafræði sömuleiðis, saga kennd á staðnum. Ef þið hugsið ykkur t.d. vikudvöl í skólabúðum á Rangárvöllum: Njála lesin á kvöldin og sögustaðir skoðaðir á daginn. Ævilangt byggju börn að slíkri fræðslu. Eða skólabúðir í sjávarþorpi eða skólabúðir í tengslum við landbúnað. Sjálfsagt mætti eyða mikilli tortryggni milli dreifbýlis og þéttbýlis með þeim hætti. Svona má láta hugann reika og möguleikarnir virðast endalausir. Því langar mig að vita hvort skólayfirvöld eru eins hrifin og sonur minn og félagar hans af skólabúðum og spyr því hæstv. menntmrh. nokkurra spurninga varðandi þessar skólabúðir.