Fyrirspyrjandi (Ólafur Þ. Þórðarson):
Herra forseti. Ég hef leyft mér að bera fram svohljóðandi fsp.: ,,Hvaða svæði landsins ná ekki Rás 2 hjá Ríkisútvarpinu? Hvaða sveitabæir ná alls ekki sjónvarpinu? Er þess að vænta að ráðherra láti þessi mál til sín taka?``
Ég þarf ekki að hafa mörg orð um þetta. Ég veit að Ríkisútvarpið er vinsæll miðill. Ég veit að mörgum finnst biðin löng eftir því að þeir njóti þeirra mannréttinda að fá að vera hlustendur útvarpsins. Ég spyr vegna þess að mér er ljóst að núv. menntmrh. hefur sýnt Ríkisútvarpinu mikinn áhuga og viljað veg þess sem mestan. Þess vegna spyr ég: Vill hann þá einnig veg landsmanna sem mestan í þeim efnum að þeir fái notið þessa miðils?