Stefán Guðmundsson:
    Virðulegi forseti. Ég þakka fyrirspyrjanda að hreyfa þessu máli hér. Þetta er gamall kunningi. Ég flutti fyrir stuttu till. til þál. um dreifingu sjónvarps og útvarps og þar var meiningin að koma því svo fyrir að Íslendingar allir gætu notið íslenska ríkisfjölmiðilsins og framkvæmdum yrði lokið árið 1990. Þetta mál var síðan afgreitt í þinginu og samþykkt þar 11. maí 1988. Þar segir:
    ,,Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að láta nú þegar gera kostnaðar- og framkvæmdaáætlun um að útsendingar Ríkisútvarpsins, þ.e. hljóðvarps og sjónvarps, náist hvar sem er á landinu og helst á fiskimiðum um landið. Áætlunin miðist við að hægt verði að framkvæma þetta verkefni fyrir árslok 1991.``
    Nú þakka ég svör hæstv. menntmrh., en ég minni á að ég held að það þurfi ekki að setja upp stóra starfshópa eða mikla áætlunargerð um þetta mál. Allt það liggur fyrir. Það liggur skjalfest fyrir að íslenska ríkisútvarpið á að ná til allra landsmanna. Það er óviðunandi ástand að heilu landshlutarnir skuli vera afskiptir í þessum efnum og er ólíðandi að svo verði lengur. Við erum að tala um hreina skiptimynt í þessum efnum ef við berum okkur saman við ákveðna skemmtiþætti sem ríkisfjölmiðlarnir eru nú að bera á borð og við skoðuðum þær kostnaðartölur sem þar eru. Þá erum við að tala um smápeninga.
    En ég vona að hæstv. menntmrh. dugi í þessu efni vegna þess að þegar þetta mál var afgreitt síðast sagði hæstv. menntmrh. sem var þá að vísu ekki menntmrh.: ,,Ég er sammála þessari tillögu.`` Hér er verið að slá því föstu að það eigi að leggja verulegt fé í dreifikerfi Ríkisútvarpsins og ég bið hæstv. ráðherra að sjá til þess að fjármagnið fari ekki í skýrslugerð og áætlunargerð heldur í framkvæmdir.