Aðstoð við leigjendur
Fimmtudaginn 09. mars 1989

     Salome Þorkelsdóttir:
    Hæstv. forseti. Það eru aðeins örfá orð. Mér finnst vera um að ræða tillögu sem er allrar athygli verð. Það kom fram í máli 1. flm. tillögunnar, hv. 16. þm. Reykv., að hún þekkir vel til aðstæðna sem lágtekjufólk getur lent í að þessu leyti, þ.e. erfiðleika vegna dýrrar húsaleigu, og mér finnst full ástæða til þess að það sé skoðað hvort hægt er að leysa þetta mál einmitt eins og hér er lagt til með breytingum á lögum um tekju- og eignarskatt þannig að greidd húsaleiga lágtekjufólks verði þá annað tveggja frádráttarbær frá tekjuskatti eða með öðrum hætti.
    Ég vildi aðeins lýsa stuðningi mínum við hugmyndina sem liggur að baki þessari tillögu.