Aðstoð við leigjendur
Fimmtudaginn 09. mars 1989

     Flm. (Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir):
    Virðulegi forseti. Mig langar til að þakka þeim hv. þm. sem hér hafa tekið til máls góða liðveislu og ég tek undir að ég vona að þeir fari með þetta inn í sína flokka því þetta er málefni fólks hvar sem það er í flokki og þetta er málefni sem mjög brýnt er að gera eitthvað í.
    Að lokinni umræðu þá óska ég eftir að þessari þáltill. verði vísað til félmn.