Aðfaranám til ökuprófs
Fimmtudaginn 09. mars 1989

     Flm. (Jóhanna Þorsteinsdóttir):
    Hæstv. forseti. Ég þakka umfjöllun og þann stuðning sem hv. þm. hafa sýnt þessari þáltill. og vona að með auknum skilningi í þessum málum komi sem fyrst til einhverra framkvæmda sem einmitt stuðlar að því að umferðarmenning okkar verði betri. Og það er aldrei of oft minnt á að mannslífin eru dýr.