Afstaða Íslands á fundi EFTA-landanna
Fimmtudaginn 09. mars 1989

     Forseti (Guðrún Helgadóttir):
    Áður en áfram verður haldið vil ég minna menn á að taka tillit hver til annars hér. Það hefur þegar komið fram að hæstv. forsrh. er með fund kl. hálffimm. Hér eru á mælendaskrá einir fimm hv. þm. þannig að ég vil biðja menn að stilla máli sínu í hóf.