Guðmundur H. Garðarsson:
Virðulegi forseti. Það hefði e.t.v. verið þarft að hæstv. forseti hefði gert athugasemd fyrr vegna þess að hér hafa komið fram ýmis atriði sem er full ástæða til að ræða nánar. Það er rétt, sem einn hv. þm. sagði, að þetta er raunverulega fyrsta umræðan um stöðu Íslands gagnvart Evrópubandalaginu. Ég er ekki að ásaka forseta út af fyrir sig að hann skuli haga svona fundarhaldi í dag, en ég vil aðeins vekja athygli á þessu.
Hér hefur verið talað um að þessi umræða hafi verið óþörf og jafnvel ekki viðeigandi. Ég get ekki tekið undir þau ummæli m.a. af þeirri ástæðu að það er ekki við hv. þm. að sakast að einn þingmaður, hv. þm. Kristín Einarsdóttir, skuli biðja um umræðu utan dagskrár um þetta efni. Það væri frekar að hæstv. ráðherrar skoðuðu nánar hvernig þeir hafa hagað sér í umræðum og viðtölum við fjölmiðlana undanfarna daga svo ég segi ekki undanfarnar vikur. Ég er ekki að tala um hæstv. forsrh. út af fyrir sig. Ég mun víkja að þessu nánar hér á eftir. En ummæli hæstv. ráðherra undanfarna daga gefa fulla ástæðu til að óska eftir umræðu utan dagskrár.
Hér er verið að fjalla um alvarleg mál og eins og kom fram í ræðu hæstv. sjútvrh., sem greinilega var mjög mikið niðri fyrir, talaði hann með þeim þunga um það sem hér hefur verið til umræðu að hann skildi raunverulega efnislega hvað felst að baki þegar við erum að ræða um okkar skoðanir á þessu máli áður en hæstv. forsrh. fer á fund EFTA-ríkjanna.
Hæstv. sjútvrh. verður þess vegna að athuga að það er hvorki við okkur hv. þm. að sakast né fjölmiðlana að þessi umræða skuli vera komin í gang með þeim hætti sem raun ber vitni um. Nú vil ég taka fram að mér finnst umræðan í dag hafa verið mjög málefnaleg þannig að það hefur ekkert komið fram í þessari umræðu sem ætti að skaða stöðu Íslands gagnvart öðrum þjóðum ef út í það er farið. Hins vegar skuluð þið skoða nánar ummæli ykkar sjálfra, hæstv. ráðherrar. Að vísu hefur hæstv. sjútvrh. verið erlendis svo að hann hefur ekki haft tækifæri til að fylgjast náið með þessu þannig að þegar hann segir eitthvað á þá leið að það sé engin ástæða til að ýfa þessi mál upp verður hann að skoða hvað sagt hefur verið í því umhverfi sem við höfum verið í sem höfum verið heima þegar hann hefur verið í viðræðum úti í Brussel.
Ég fagna því og gerði mér strax grein fyrir því að auðvitað mundi hæstv. sjútvrh. ekki bjóða neinar veiðiheimildir í þeim viðræðum sem fóru fram úti í Brussel, enda hefur enginn sagt það að hæstv. ráðherra hafi boðið slíkt. Hins vegar hefur verið hjá okkur í umræðunni, í fjölmiðlum, hvort ríkisstjórnin ætli að nálgast þessi mál með þeim hætti að bjóða veiðiréttindi gegn veiðiréttindum í fiskveiðilögsögu Efnahagsbandalagsríkjanna. Það hefur komið fram með beinum og óbeinum hætti að ýmsir ráðherrar hafa fullan hug á að skoða og jafnvel mátti skilja ræðu hæstv. sjútvrh. þannig að hann teldi það ekki tiltökumál út af fyrir sig að þetta væri skoðað. Þá hef
ég misskilið hann ef það er ekki rétt. Hann talar sérstaklega um rækju og kolmunna, annars vegar krabbategund og hins vegar fisktegund, sem æskilegar tegundir til að veiða innan lögsögu Efnahagsbandalagsríkjanna. Hæstv. ráðherra sagði ef ég man rétt: Það er óskynsamlegt að opna samningaviðræður við EB út frá því að það komi ekki hugsanlega til greina að ræða það út frá veiðiheimildaskiptum á þessum afurðum annars vegar og einhverju sem við höfum að bjóða hins vegar. Vonandi leiðréttir hæstv. sjútvrh. ef ég hef misskilið hann.
Ég vil því ítreka að mér finnst eðlilegt að þessar umræður skuli fara fram utan dagskrár og þakka hv. þm. Kristínu Einarsdóttur fyrir að hafa átt frumkvæði að því.
Það sem ýmsir hæstv. ráðherrar hafa sagt í fjölmiðlum undanfarið er mjög mótsagnakennt. Ummælin eru mjög mótsagnakennd og við skulum skoða það nánar. Þá verður alveg augljóst hvað við er átt. Ég byrja á því að vitna í það sem hæstv. forsrh. segir í Tímanum 9. mars sl. Hann segir í einföldu máli: Það hefur engum veiðiheimildum verið lofað. --- Síðan segir hæstv. forsrh.: Veiðiheimildir fyrir aukin tollfríðindi koma ekki til greina.
Ég fagna þessum ummælum út af fyrir sig og get stutt þessi sjónarmið.
En hvað segir svo hæstv. utanrrh.? Það er annars eðlis. Hæstv. utanrrh. segir í viðtali í Morgunblaðinu 8. mars: ,,Það er sjálfsagt að fá fram óskir EB um veiðiheimildir innan íslenskrar fiskveiðilögsögu.`` Og síðan segir hæstv. ráðherra, sem er því miður ekki í salnum, orðrétt: ,,Þetta getur greitt fyrir markaðsmálum íslensks saltfisks í EB-löndum.`` Síðan segir í sama viðtali við hæstv. utanrrh.: ,,Ég tel því sjálfsagt að halda þessum viðræðum áfram og reyna að brjótast út úr þessum vítahring. Ef við viljum fá lausn á þessu saltfisksmarkaðsmáli fyrir árið 1992, þá byggist það á því að hlusta á óskir bandalagsins og ræða þær í stað þess eins að stinga höfðinu í sandinn og segja: Við erum ekki við viðtals``, sagði utanrrh. ,,En við ætlum ekki að bjóða upp á neitt heldur heyra hvað þeir eru að fara fram á. Er það eitthvað til málamynda?`` spyr hæstv. ráðherra. ,,Það þarf bara að meta það þegar það er komið í ljós hvað þeir eru að fara fram á.`` --- Lýk ég síðan tilvitnun í viðtal við hæstv. utanrrh. í Morgunblaðinu 8. mars.
Fyrir mér er skýrt hvað utanrrh. er að fara. Honum finnast koma til greina hnífakaup við Evrópubandalagið, þ.e. veiðiheimildir og opnun íslenskrar fiskveiðilögsögu fyrir fiskiskipum Evrópubandalagsins á móti tollafríðindum. En ég er ekki einn um að skilja þetta þannig. Það vill svo til, hæstv. ráðherra, að við annan hæstv. ráðherra í ríkisstjórninni, hæstv. menntmrh. sem því miður getur ekki verið viðstaddur í dag vegna sjúkleika, er talað í Morgunblaðinu sama dag og hæstv. menntmrh. Svavar Gestsson skilur þetta eins og ég hef skilið það. En í Morgunblaðinu 8. mars segir hæstv. menntmrh., með leyfi forseta: ,,Mín viðhorf í þessum efnum eru
mjög lík því sem ég hef séð höfð eftir Eyjólfi Konráð Jónssyni``, þ.e. viðtal sem var haft við hv. þm. Eyjólf Konráð Jónsson tveim eða þrem dögum áður.
Síðan segir hæstv. menntmrh. í þessu viðtali í Morgunblaðinu: ,,Ég tel að það eigi ekki að opna fyrir verslun með veiðiheimildir innan okkar landhelgi. Það á ekki að ræða það. Þessi landhelgi er forsenda allrar efnahagslegrar tilveru Íslendinga og það er ekki hægt að líta á hana og aðgang að henni með sama hætti og landhelgi og fiskveiðar annarra ríkja sem byggja sitt á sjávarútvegi í miklu minna mæli en við gerum.``
Það er þess vegna mjög skýrt fyrir okkur, sem fylgjumst vel með pólitískri umræðu, að ákveðnir ráðherrar vilja semja um veiðiheimildir, aðrir ekki. Og þá kemur auðvitað það sem er grundvallaratriði og er meginástæðan fyrir því að hv. þm. Kristín Einarsdóttir skuli biðja um þessa umræðu. Við hv. þm. og íslenska þjóðin viljum vita hver er raunveruleg stefna núv. ríkisstjórnar í þessum málum. Ég treysti því að hæstv. forsrh. taki af skarið í þessum efnum og láti ekki aðra ráðherra vera með ummæli sem gera að verkum að við hv. þm. og þjóðin öll er full efasemda um hvert hæstv. ríkisstjórn stefnir í þessum viðræðum sínum við Evrópubandalagið. Þetta er rökrétt afleiðing af því hvernig hæstv. ráðherrar hafa talað. Þetta vil ég að hæstv. sjútvrh. viti. Hann er ekki málsaðili með þessum hætti.
Mín skoðun er að það komi ekki til greina að opna viðræður milli Íslands og Evópubandalagsins um framtíðarsamskipti þessara aðila á grundvelli samninga um veiðiheimildir fyrir fiskiskip Evrópubandalagslandanna. Ég tel það útilokað. Ég tel það einnig ranga aðferð í væntanlegum samningaviðræðum milli Íslands og Evrópubandalagsins að hefja þær á grundvelli viðræðna um gagnkvæmar veiðiheimildir. Og ástæðurnar eru mjög augljósar.
1. Íslendingar hafa ekkert til skiptanna í þessum efnum vegna þess að fiskistofnarnir við Ísland eru veikir.
2. Við erum að reyna að byggja þessa fiskistofna upp. Veiðiheimildir til Evrópubandalagsútgerðaraðila gera það verk enn erfiðara og þrengja enn meir að íslenskri útgerð og íslenskri fiskvinnslu.
3. Við höfum því um ekkert að semja við aðrar þjóðir í þessum efnum. Við þurfum þvert á móti að efla samstarf við þær og þær þjóðir sem vilja vernda Norður-Atlantshafið fyrir mengun iðnríkja Vestur-Evrópu. Þar eigum við mikið og ríkt erindi við þessar þjóðir. Það er sú mengunarhætta sem stafar af þeirra háþróaða iðnaði sem er mjög mikil fyrir ekki bara fiskistofna í Norðursjónum heldur einnig ef hún fer að teygja sig norður í Norður-Atlantshaf. Þetta er eitt af veigamestu atriðunum í því að tryggja vöxt og heilbrigði fiskistofnanna í Norður-Atlantshafi. Um þetta þurfum við að ræða við þessar þjóðir sérstaklega.
Þess vegna á ríkisstjórnin ekki að ræða við Evrópubandalagið eða önnur ríki um veiðiheimildir innan okkar fiskveiðilögsögu. Staða og þýðing Íslands
í samstarfi vestrænna þjóða byggist á mun veigameiri atriðum frá þeirra sjónarmiði séð en því hvort þessar þjóðir fái að stunda fiskveiðar við Ísland eða ekki. Þetta vita allir hv. alþm. og Íslendingar almennt.
Það er nefnilega um að ræða gagnkvæma hagsmuni á mjög mörgum öðrum veigamiklum sviðum. Þess vegna eigum við ekki sem þjóð að láta undan ákveðnum hagsmunaþrýstingi aðila innan Evrópubandalagsins sem knýja á um að opna íslenska fiskveiðilögsögu fyrir úthafstogurum og stærri fiskiskipum þessara þjóða. Æðstu menn Evrópubandalags eða Evrópuþjóðanna skilja þetta, en því miður virðist sem ýmsir ráðherrar í núv. hæstv. ríkisstjórn skilji ekki þetta eða átti sig ekki nægilega vel á þessari stöðu Íslands. Þess vegna er eðlilegt að það sé sagt við hæstv. ráðherra: Hættið þið að ræða við erlenda aðila um veiðiheimildir þeim til handa í fiskveiðilögsögu okkar. Það eru ótal mörg önnur atriði sem við getum rætt og samið um að hætti sjálfstæðra þjóða.
Þá vil ég víkja örfáum orðum að Íslandi og EFTA. Ég átti sæti í ráðgjafarnefnd EFTA í 15 ár, allt frá því að Ísland varð aðili að EFTA. Fyrstu árin var verulegur fengur í því að mínu mati að taka þátt í því samstarfi. Þá var EFTA bandalag eða réttara sagt samtök þjóða sem vigtuðu. Það var meðan Bretar og Danir voru í EFTA. Við brottför þessara þjóða gerbreyttist bæði ímynd og styrkur EFTA. Þegar við erum að tala um að Ísland eigi að nota EFTA í samningaviðræðum við Evrópubandalagið er það gott út af fyrir sig, en við getum alveg talað við Svía og Norðmenn og fengið þær niðurstöður sem við óskum eftir. Það vita allir sem til þekkja að þessar þjóðir ráða meira og minna því
sem þar gerist. Alla vega var það mín tilfinning meðan ég var í ráðgjafarnefndinni. Nú mundu ýmsir segja: Það er ekki það sama að sitja í ráðgjafarnefnd og sitja í stjórnunarnefnd eða vera þar sem pólitíkus eða embættismaður. Það er þá mál út af fyrir sig. Ég set fram mína skoðun. Það er að mínu mati ástæðulaust að binda svo miklar vonir við EFTA í sambandi við stöðu Íslands gagnvart Evrópubandalaginu. Ég hef allt aðra skoðun í þeim efnum. Ég held að staða Íslands gagnvart Evrópubandalaginu sé best og styrkust þegar Ísland sjálft sem lítið þjóðríki norður í Atlantshafi reynir að ná sínum samningum og það veiki okkur frekar en hitt að þurfa að eiga allt of mikið undir EFTA-samstarfinu í þeim efnum.
Að lokum, forseti, hefði verið ástæða til að ræða um störf Evrópunefndar. Ég vil segja það fyrir mitt leyti að það var og er þakkarvert að hv. þm. Kjartan Jóhannsson skyldi leggja fram þá þáltill. sem varð þess valdandi að þessi nefnd var sett á laggirnar. Undir forustu hv. þm. Kjartans Jóhannssonar hefur nefndin reynt að sinna sínum störfum vel, en utanrrn. hefur unnið alveg ómetanlegt starf fyrir þessa nefnd. Ég tel að það styrki bæði stöðu okkar sem þjóðar í umræðunni sem og einnig stöðu hv. alþm. að þessi nefnd skyldi sett á laggirnar og hafa unnið sín störf
með þeim hætti sem raun ber vitni um.
Það væri ástæða til að leggja nokkuð út af ræðu formanns nefndarinnar, hv. þm. Kjartans Jóhannssonar. Hún var með alveg sérstökum hætti og gaf tilefni til mikillar umræðu. Hann ræddi þar um m.a. að viðreisnin á sínum tíma og aðild okkar að fríverslunarsvæðinu hefði verið fyrsta skrefið í merkilegri þróun sem er alveg rétt. Síðan vék hann að því að nú stæðum við frammi fyrir því að stíga næsta skrefið sem er nálgun Íslands við Evrópubandalagslöndin. Hann ræddi um fjármagnið o.s.frv. og var margt fróðlegt í ræðu hans um það efni. En ég held að það sé nauðsynlegt áður en við ræðum um okkar stöðu með þeim hætti sem hv. þm. gerði að við gerðum upp okkar eigin stöðu. Hvernig stöndum við sjálf sem þjóð eignalega? Hvernig standa íslenskir atvinnuvegir? Hvernig er eignarhaldi varið af okkar hálfu í þýðingarmestu atvinnutækjum sem við eigum? Hvernig erum við sem þjóð undir það búin að mæta því að fá erlent fjármagn inn í íslenskt atvinnulíf án þess að glata því eignarhaldi sem við teljum okkur þó hafa enn þá yfir framleiðslunni og atvinnufyrirtækjunum í landinu? Það eitt að ræða um fjármagnið býður upp á mikla og flókna umræðu sem ég vona að fari fram fljótlega.
Ég vil síðan að lokum segja þetta: Við Íslendingar eigum að fara varlega í þessum málum og skoða þau í mun stærra samhengi en út frá einhliða stöðu Evrópubandalagsins gagnvart öðrum ríkjum. Ég er sannmála því, sem hv. þm. Páll Pétursson sagði, að við eigum að skoða þetta út frá því sjónarmiði að Ísland getur og á að horfa til fleiri átta en til Vestur-Evrópu. Þó Vestur-Evrópa sé þýðingarmikil eigum við mjög þýðingarmikil samskipti og tengsl við önnur þjóðlönd. Ég óttast að of náin tengsl Íslands og of sterkar viðmiðanir við það sem Evrópubandalagslöndin eru að gera geti skaðað stöðu okkar sem þjóðríkis í samskiptum við aðrar þjóðir.