Afstaða Íslands á fundi EFTA-landanna
Fimmtudaginn 09. mars 1989

     Utanríkisráðherra (Jón Baldvin Hannibalsson):
    Virðulegi forseti. Eitt af leikritum Shakespeares heitir Mikill asi út af engu og stundum er reynt að setja svoleiðis stykki á svið á hinu háa Alþingi. Það getur verið skemmtilegt, en tilgangur þessarar umræðu er ekki að skemmta heldur að skýra.
    Nú vil ég hafa það skýrt að ég hef hvergi sagt að Íslendingar ættu að taka upp þá stefnu í samskiptum við Efnahagsbandalagið að bjóða upp á veiðiheimildir í skiptum fyrir tollfríðindi. Það hef ég hvergi sagt, hvergi nokkurs staðar. Ég hef ekki boðað neina stefnubreytingu í því efni. Ég hef sagt að það er staðreynd að Efnahagsbandalagið sem slíkt rekur sameiginlega fiskveiðistefnu og segir: Við látum í ljós þá ósk að við viljum fá veiðiheimildir ef við ætlum að semja um viðskiptafríðindi við þriðja aðila. Það er staðreynd. Þessu hafa Íslendingar svarað allt frá því að bókun 6 varð virk 1976/1977 á þann veg að við værum að sjálfsögðu reiðubúnir að hlusta á Efnahagsbandalagið ef það hefur uppi óskir um veiðiheimildir, hlusta á, og við gætum rætt það út af fyrir sig. Veiðiheimildir gagnvart veiðiheimildum er eitt, annað er síðan tollfríðindi gagnvart tollfríðindum. Þetta hafa forsvarsmenn Íslands gert allt frá 1976/1977, þeirra á meðal forustumenn Sjálfstfl., og að sjálfsögðu ágreiningslaust. Hins vegar hefur hvorki gengið sé rekið. Það sem við höfum hins vegar gert er það að í tvíhliða viðræðum við forustumenn Efnahagsbandalagsins höfum við rætt það land fyrir land við forsætisráðherra, utanríkisráðherra og aðra pólitíska forustumenn: Eru einhverjar slíkar kröfur uppi af hálfu Efnahagsbandalagsins? Og við höfum fengið það staðfest að svo er ekki um hinar gömlu þjóðir sem veiddu hér við Ísland. Það á ekki við um Breta, það á ekki við um Þjóðverja, það á ekki við um Frakka, það á ekki við um Belga, það á ekki við um Hollendinga, það á ekki við um Ítali eftir því sem við best vitum, það á ekki við um Portúgali. Það á hugsanlega við um Spánverja sem hafa einhvers staðar á blaði að þeir óski eftir 3000 tonnum í veiðiheimildum. Málið er hins vegar að það hefur hvorki gengið eða rekið í þeim erindum sem við eigum við Efnahagsbandalagið, sem er um það að fá viðaukasamning við okkar upphaflega ágæta fríverslunarsamning til að hækka þar hlutfall þeirra afurða sem við seljum á markað og fá fyrir þær ákveðin tollfríðindi.
    Því er alltaf borið við að það sé ekki hægt að ræða þessi mál vegna þess að Íslendingar neiti að hlusta á óskir Efnahagsbandalagsins um veiðiheimildir. Nú er spurningin: Hverjar eru óskir Efnahagsbandalagsins um veiðiheimildir? Eru þær einhverjar? Það bara liggur ekki fyrir. Það skal hins vegar tekið fram að í viðræðum hæstv. sjútvrh. við senor Marin hafði hann engar óskir fram að færa í því efni, þ.e. hann gat ekki skilgreint það á nokkurn máta.
    Ég tók eftir því að hv. þm. Eyjólfur Konráð Jónsson sagði í ræðu sinni áðan eitthvað á þessa leið ef ég man með að fara: Ef það kemur upp í slíkum viðræðum, þ.e. óskir af hálfu Efnahagsbandalagsins,

mun koma á daginn að við eigum ekkert aflögu og þeir hafa sennilega ekkert að bjóða. Það er einmitt þetta sem ég vil fá leitt í ljós. (Gripið fram í). Já, já. En þetta vil ég fá í ljós. Ég vil fá það fram í dagsljósið og á borðið.
    Það verður að vera alveg skýrt að það hefur enginn boðað stefnubreytingu í þessum málum, enginn. Þetta mál snýst eingöngu um það að loka ekki fyrir viðræður, að lýsa sig reiðubúinn að hlusta á þessar óskir ef þær eru einhverjar, meta þær síðan ef þær væru einhverjar.
    Hæstv. sjútvrh. gerði ágætlega grein fyrir því hér. Ég er algerlega sammála honum og sérstaða mín í þessu máli er engin og ég veit ekki betur en allir sem sem hér hafa um þessi mál fjallað á undanförnum árum séu sammála um þetta.