Forseti (Guðrún Helgadóttir):
    Borist hefur svohljóðandi bréf:
    ,,Formaður þingflokks Framsfl. hefur ritað mér á þessa leið:
    Þar sem Steingrímur Hermannsson forsrh. er erlendis og getur því ekki sótt þingfundi á næstunni leyfi ég mér að hans beiðni með skírskotun til 130. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess að 1. varamaður Framsfl. í Reykn., Níels Árni Lund, taki sæti á Alþingi í fjarveru hans.
    Þetta er yður hér með tilkynnt, hæstv. forseti.
Kjartan Jóhannsson,

forseti Nd.``

    Níels Árni Lund hefur áður setið á þingi á þessu kjörtímabili og ég býð hann velkominn til starfa.