Íslenskt mál í sjónvarpi
Mánudaginn 13. mars 1989

     Flm. (Júlíus Sólnes):
    Virðulegi forseti. Hér er um að ræða þáltill. sem var flutt á vorþinginu í fyrra en varð þá ekki fullafgreidd. Hún kom það seint fram. Töldum við flm. því rétt að reyna að endurflytja hana því að hér er á ferðinni mál sem við teljum mjög brýnt að taka á. Held ég að allir geti verið okkur sammála um það. Því miður hefur nú þinghaldið þróast með þeim hætti að þó að þetta mál hafi verið lagt fram að mig minnir síðla í nóvember þá hefur það ekki komist á dagskrá fyrr. Ég er hins vegar ekki að kenna einum eða neinum um það. Þinghaldið hefur þróast með þeim hætti eins og ég sagði að tillögur sem komu fram í haust eru fyrst núna að sjá dagsins ljós í umræðum.
    Ég vil undirstrika það sem ég sagði reyndar áðan að það er ekki minni ástæða nú en í fyrra að flytja tillögu í þeim dúr sem hér liggur fyrir. Eins og segir í till., með leyfi hæstv. forseta:
    ,,Alþingi ályktar að fela menntmrh. að láta undirbúa og halda íslenskunámskeið fyrir almenning í sjónvarpi. Gera skal ráð fyrir því að fólki gefist kostur á að rifja upp beygingarfræði íslenskrar tungu, fá æfingu í réttritun og ritleikni, þjálfun í framsögn og kennslu í talmáli. Slík námskeið skulu haldin reglulega í sjónvarpi. Kostnaður vegna þessa skal greiddur úr ríkissjóði.``
    Það er alveg ljóst, og um það eru reyndar eins og ég gat um allir sammála, að íslenskan á í vök að verjast. Þegar hlustað er á fjölmiðla, bæði þuli sem þar koma fram svo og ýmsa þá aðra sem koma fram bæði í útvarpi og sjónvarpi, þá verða alls konar ambögur og sérstaklega enskuslettur mjög áberandi og virðist mér að þetta fari fremur vaxandi en að úr því dragi.
    Þá er eitt sem veldur mér nokkrum áhyggjum og það er að oft þegar íslenskukennarar eru spurðir út í þessa þróun, þá virðast þeir margir hverjir hafa af því litlar áhyggjur. Það undrar mig dálítið. Þeir tala oft um að hér sé um að ræða þróun málsins, eins og það er svo oft orðað, en að það sé ekki sérstök ástæða til að hafa af þessu miklar áhyggjur. Ég minnist þess að þegar þessi tillaga var lögð fram á Alþingi í fyrra þá sá einn fulltrúi íslenskukennara ástæðu til að skrifa grein í Dagblaðið þar sem fjallað var um tillöguna. Greinarhöfundur fann tillögunni allt til foráttu og taldi að flm. hennar væru að hrópa úlfur, úlfur að óþörfu. Það er mjög slæmt ef þetta er hin almenna skoðun hjá íslenskufræðingum sem kenna börnum í grunnskólum og framhaldsskólum móðurmálið. Ég vona sannarlega að svo sé ekki.
    Þessi tillaga var send út til umsagnar og frá Íslenskri málnefnd barst mjög ítarleg umsögn þar sem tekið er mjög rækilega undir það sem flm. till. leggja til, þ.e. að tekin verði upp reglubundin námskeið í sjónvarpi, og í útvarpi að sjálfsögðu, með þeim hætti sem við lýsum í grg. Mig langar, með leyfi hæstv. forseta, að lesa hér upp niðurlag umsagnarinnar sem barst frá Íslenskri málnefnd. Það hljóðar svo:
    ,,Það er mörgum manni undrunarefni að ríkið sem nú hefur rekið sjónvarpsstöð rúm 20 ár skuli ekki

fyrir langa löngu hafa komið á reglubundinni íslenskukennslu í sjónvarpi eða a.m.k. gert myndarlegar tilraunir til þess. Nú á dögum er varla hægt að hugsa sér betri vettvang en sjónvarp til að koma á framfæri hvers konar fræðslu handa almenningi um mál, bókmenntir og sögu eða íslensk fræði yfirleitt. Þetta má gera á óteljandi vegu svo að allir geti fengið eitthvað við sitt hæfi og sinn smekk. Sumt má vera í skemmtunarformi, annað þurr fróðleikur og loks má blanda skemmtun og fróðleik í öllum hugsanlegum hlutföllum. Áður hefur verið vikið að þessu efni í áliti sérstakrar málnefndar sem starfaði á vegum Sverris Hermannssonar þáv. menntmrh. 1986 og í umsögn Íslenskrar málnefndar um það álit. Hvort tveggja er birt í Málfregnum I, 1987, 1. tbl., sem fylgja þessari umsögn, sjá einkum bls. 18 og 20. Auk þess gæti sjónvarpið raunar gert mikið gagn með litlum tilkostnaði þó það efndi ekki til beinna námskeiða. Í sjónvarpi mætti t.d. bregða upp einni mynd á hverju kvöldi, 15--20 sekúndur í senn, á besta sendingartíma þar sem veitt yrði fræðsla um eitt málfarslegt atriði í einu, t.d. beygingu eins orðs sem oft er rangbeygt eða rétta meðferð á orðtaki sem oft er farið rangt með o.s.frv. Af nógu er að taka.``
    Ég get mjög tekið undir það sem þarna kemur fram og vil ítreka það sem kemur fram í grg. með till. að efnt verði til námskeiða í sjónvarpi fyrst og fremst því að það er langsterkasti fjölmiðillinn og áhrifa hans gætir mest í þjóðfélaginu. Það er ekki nokkur vafi á því. Þá hef ég það í huga að á besta útsendingartíma, t.d. á laugardagseftirmiðdegi milli kl. 5 og 7 eða þar um bil, væri efnt til reglubundinna námskeiða. Síðan er ekki síður mikilvægt að samhliða slíkum námskeiðum yrðu gefnar út ritraðir um íslenskt mál þar sem sett væri fram á einfaldan og skipulegan hátt beygingarfræði íslensku, orðtök, notkun orðtaka og margt annað sem hentaði fyrir almenning til þess að rifja upp íslenskt mál og beygingarkerfi þess. En öll vitum við að íslenska er það erfitt og flókið tungumál að þeir sem hafa numið íslensku í skóla, lært þar sína málfræði og ekkert gert til þess að halda henni við síðan, þeir hljóta að vera í erfiðleikum með að nota og beita íslenskunni á réttan hátt. Það er ekki nema eðlilegt.
    Virðulegur forseti. Ég vona að þessi till. fái góðar og skjótar undirtektir.