Íslenskt mál í sjónvarpi
Mánudaginn 13. mars 1989

     Flm. (Júlíus Sólnes):
    Virðulegur forseti. Ég vil þakka þeim hv. alþm., sem hér hafa tekið til máls í þessum umræðum um till. okkar flm. um íslenskt mál, fyrir undirtektir og þann stuðning sem þeir hafa sýnt málinu. Mér láðist að geta þess í framsögu minni að ég vildi fá að vísa þessari till. til 2. umr. og ég geri það að tillögu minni að henni verði vísað til umfjöllunar í félmn.