Lyfjadreifing
Þriðjudaginn 14. mars 1989

     Frsm. heilbr.- og trn. (Valgerður Sverrisdóttir):
    Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir nál. á þskj. 598 frá hv. heilbr.- og trn. Frv. er til breytinga á lögum nr. 76/1982, um lyfjadreifingu, með síðari breytingum. Þess má geta að hér er nánast verið að lögfesta framkvæmd sem hefur viðgengist á undanförnum árum.
    Nefndin hefur fjallað um frv. og leggur til að það verði samþykkt óbreytt. Guðmundur Ágústsson sat fund nefndarinnar og hann er samþykkur áliti þessu. Undir nál. rita auk þeirrar sem hér stendur hv. þm. Stefán Guðmundsson, Salome Þorkelsdóttir, Ragnar Óskarsson, Karl Steinar Guðnason, Guðmundur H. Garðarsson og Guðrún Agnarsdóttir.