Verðbréfaviðskipti
Þriðjudaginn 14. mars 1989

     Frsm. fjh.- og viðskn. (Valgerður Sverrisdóttir):
    Hæstv. forseti. Í fjarveru formanns og varaformanns hv. fjh.- og viðskn. Ed. mæli ég fyrir nál. á þskj. 605, um frv. til laga um verðbréfaviðskipti og verðbréfasjóði. Hér er 1. mál þingsins á ferðinni og er nú kannski tími til kominn að það fari að komast í höfn og mér er ánægja að geta þess að undir þetta nál. rita allir nefndarmenn, að vísu tveir með fyrirvara.
    Nefndin hefur fjallað ítarlega um frv., einkum þó 30. gr. þess, og kallað á fund sinn Gunnar Helga Hálfdanarson frá Fjárfestingarfélagi Íslands, Pétur Blöndal frá Kaupþingi, Sigurð B. Stefánsson, Verðbréfamarkaði Iðnaðarbankans, Eirík Guðnason og Sveinbjörn Hafliðason frá Seðlabanka Íslands og Stefán Pálsson frá Sambandi ísl. viðskiptabanka. Tryggvi Axelsson frá viðskrn. aðstoðaði einnig nefndina.
    Nefndin leggur til að málið verði samþykkt með þeim brtt. sem hún flytur á sérstöku þingskjali sem er þskj. 606. Í brtt. felst í fyrsta lagi sú breyting að gert er ráð fyrir að 30. gr. frv. falli niður. Í upphaflegri gerð frv. var í 30. gr. ákvæði um að ráðherra gæti heimilað Seðlabanka Íslands að láta sömu reglur gilda um verðbréfafyrirtæki og verðbréfasjóði að því er varðar bundið fé og settar eru innlánsstofnunum. Í meðförum fjh.- og viðskn. Nd. var 30. gr. breytt og Seðlabanki Íslands skuldbundinn til að láta sömu reglur gilda um verðbréfasjóði, eftir því sem við getur átt, og settar eru innlánsstofnunum. Nefndin hefur athugað þessa grein nánar og er sammála um að hún eigi ekki heima í þessum lögum. Fulltrúar ríkisstjórnarflokkanna telja að ákvæði greinarinnar eigi frekar heima í lögum um Seðlabanka Íslands.
    Síðari brtt. á þskj. 606 er á þá leið að orðalag er fært til samræmis við svipað ákvæði í frv. um eignarleigustarfsemi eins og því hefur verið breytt í meðferð fjh.- og viðskn. Nd. Fullharkalegt er að svipta verðbréfamiðlara eða verðbréfafyrirtæki starfsleyfi um stundarsakir meðan lögreglurannsókn stendur yfir á meintum brotum leyfishafa á lögum þessum. Nefndin telur réttara að miða heimild ráðherra til að svipta leyfishafa starfsleyfi við dómsrannsókn.
    Danfríður Skarphéðinsdóttir sat fundi nefndarinnar og er samþykk áliti þessu. Undir nál. rita auk frsm. hv. þm. Eiður Guðnason formaður, Eyjólfur Konráð Jónsson, Ragnar Óskarsson og Jóhann Einvarðsson og hv. þm. Halldór Blöndal og Júlíus Sólnes með fyrirvara.