Stjórn efnahagsmála o.fl.
Þriðjudaginn 14. mars 1989

     Frsm. fjh.- og viðskn. (Valgerður Sverrisdóttir):
    Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir nál. á þskj. 615, um frv. til l. um breytingu á lögum nr. 13/1979, um stjórn efnahagsmála o.fl. Nál. er frá hv. fjh.- og viðskn.
    Nefndin hefur athugað frv. og leggur til að það verði samþykkt óbreytt. Danfríður Skarphéðinsdóttir sat fundi nefndarinnar og er samþykk áliti þessu. Undir nál. rita auk frsm. Eiður Guðnason, Ragnar Óskarsson, Jóhann Einvarðsson og með fyrirvara hv. þm. Júlíus Sólnes, Eyjólfur Konráð Jónsson og Halldór Blöndal.