Danfríður Skarphéðinsdóttir:
Kvennalistinn hefur frá upphafi mótmælt kröftuglega hugmyndum um skatt á lífsnauðsynjar manna eins og matvæli. Það gerum við enn og hljótum því að styðja þá viðleitni sem fram kemur í því frv. sem hér er til umræðu þó aðeins sé um lækkun en ekki afnám matarskattsins að ræða. Í löngum og ítarlegum umræðum hér um jól og áramót á síðasta þingi um 25% skattlagningu á matvæli kom hvað eftir annað fram að auðvitað eru matvörur stærri hluti af neyslu lágtekjufjölskyldna en annarra. Hvað sem öllum meðaltalsútreikningum líður, sem þáv. hæstv. fjmrh. reyndi að sannfæra þingmenn með, kemur 25% matarskattur harðast niður á slíkum fjölskyldum. Þær áttu í vök að verjast þá og eiga enn, ekki síst þessa dagana þegar verðstöðvun hefur verið aflétt eftir langvarandi launafrystingu og verðhækkanir hafa orðið umtalsverðar á síðustu tveimur vikum án þess þó að nýir kjarasamningar hafi verið gerðir þannig að ofan á þá kaupmáttarrýrnun sem orðin er nú þegar bætast þær verðhækkanir sem urðu um síðustu mánaðamót.
Það var mikil samstaða í stjórnarandstöðuflokkunum á síðasta ári gegn matarskattinum, enda er þetta að mínu mati ranglát, ósanngjörn og heimskuleg skattlagning. Matvæli eru dýrari hér á landi en víða annars staðar og laun eru lægri. Sú ráðstöfun að leggja skatt á matvæli, sem á ekkert skylt við jöfnuð eða jafnaðarmennsku, er því líkleg til að auka frekar það óréttlæti sem því miður býr á meðal okkar.
Það þótti því skjóta heldur skökku við að þessum illræmda skatti skyldi komið á þegar fjmrh. sem kennir sig við jafnaðarmennsku sat í fjármálaráðuneytinu, en hann skýldi sér á bak við stefið sem klingdi í eyrum okkar um einföldun, réttlæti og skilvirkni.
Í ljós kom að söluskattsinnheimtan var lélegri en nokkru sinni fyrr á síðasta ári þannig að ekki leiddi einföldunin til skilvirkni og allar fjölskyldur landsins fengu að finna fyrir því óréttlæti sem matarskatturinn hefur í för með sér. Það má eiginlega segja hversu kaldhæðnislega sem það kann að hljóma að auðvitað var það matarskatturinn sem varð banabiti fyrrv. ríkisstjórnar. Öll þekkjum við framhaldið. Við tók ríkisstjórn sem kennir sig við jafnrétti og félagshyggju eða ætti ég kannski að segja: sem kenndi sig við þetta tvennt. Ekki hef ég nú um nokkra hríð heyrt stjórnarliða hampa þessum hugtökum. Ef til vill hafa þeir í alvöru litið í spegil og hvorki séð þar jafnréttis- né félagshyggjusvip.
Miðað við breytta samsetningu ríkisstjórnarinnar frá því að matarskatturinn varð að lögum tel ég nauðsynlegt að rifja upp þá umræðu sem fram fór hér um frv. Nú sitja tveir flokkar sem kenna sig við félagshyggju og jafnaðarmennsku í ríkisstjórninni og svo vel fer á með þeim eða alla vega formönnum þeirra að þeir leggjast í ferðalög til sameiginlegra landvinninga og vænta mætti að þeir geti komið sér saman um aðgerðir til að auka jöfnuð í landinu. ---
Nú hefði ég gjarnan viljað sjá hér hæstv. menntmrh. því að mig langaði til að vitna aðeins örlítið í orð hans á síðasta þingi þegar matarskatturinn var til umræðu. ( Forseti: Forseti vill tilkynna að það virðist sem menntmrh. sé genginn úr húsinu.) Þá vildi ég fara fram á að hæstv. fjmrh. hlustaði og svaraði nokkrum fyrirspurnum.
Ég minni á brtt. sem gerðar voru við 2. umr. söluskattsfrv. á þinginu í fyrra, en þá flutti hæstv. núv. menntmrh. brtt. um að matvörur verði undanþegnar söluskatti, en til vara hafði hann uppi tillögu um að fjmrh. eigi að endurgreiða innheimtan söluskatt af mjólk og mjólkurafurðum, kjötvörum og grænmeti sem framleitt er innan lands. Mig langar til að grípa aðeins niður í eina af ræðum núv. hæstv. menntmrh. frá þessum tíma og biðja þá hæstv. fjmrh. um að svara spurningu sem ég vildi varpa fram í tengslum við þennan örstutta ræðubút sem ég ætla að fá að vitna til með leyfi forseta. --- Hér segir:
,,Það hefur komið fram af hálfu Alþb. varðandi þennan matarskatt að við munum strax og við fáum möguleika til að hafa áhrif á stjórnkerfið breyta þessari skattlagningu. Við teljum hana óhæfu. Hún er atlaga að lægst launaða fólkinu í landinu sérstaklega. Alþfl. hafði það lengi á stefnuskrá sinni að leggja á skatta hlutfallslega hækkandi eftir hækkandi tekjum. Hann hefur núna tekið upp nýja stefnu sem felst í því að leggja þeim mun hærri skatta á fólk sem það hefur lægri tekjur. Það birtist sérstaklega í þessum matarskatti og svo í því að hátekjuþrep í tekjuskatti hefur verið fellt niður þrátt fyrir þær brtt. sem við alþýðubandalagsmenn höfum flutt, bæði í þessari hv. deild og sömuleiðis í Nd.``
Nú vildi ég spyrja hæstv. fjmrh. með hvaða hætti Alþb. ætlar sér að breyta þessari skattheimtu eins og hér kemur fram. Þetta er reyndar ekki eini staðurinn þar sem þetta kemur fram hjá hæstv. menntmrh. Hann gerir grein fyrir atkvæði sínu og þar endurtekur hann þessa yfirlýsingu ef ég má vitna til þess, með leyfi forseta. Þar segir hann: ,,Alþb. hefur lýst því yfir við meðferð þessa máls í þinginu að við munum strax og við fáum tækifæri til breyta þessum lagaákvæðum.``
Ég vildi gjarnan fá að heyra svör hæstv. fjmrh. við þessum spurningum og
ætla reyndar að grípa niður í aðra ræðu sem er flutt af hæstv. landbrh. frá sama tíma og vildi gjarnan sömuleiðis fá að heyra frá hæstv. fjmrh. hvort Alþb. er enn þá sama sinnis og hvenær megi vænta þess að breytingar verði gerðar á þessari skattlagningu. Hér segir, með leyfi forseta:
,,Þetta er ekki bara tímamótaviðburður á Íslandi, herra forseti, heldur sýnist mér eftir nokkra athugun á þeim málum að þetta sé tímamótaviðburður í heiminum. Það sé tímamótaviðburður í henni veröld þegar sú þjóð sem býr við einhverja dýrustu matvöru heimsins ætlar að leggja ofan á hana alla saman 25% söluskatt. Ég hef farið yfir það m.a. með því að kynna mér stöðu þessara mála í löndum Efnahags- og framfarastofnunarinnar eða OECD-löndunum hvernig þessu er háttað hjá öllum þeim löndum og ég mun
fara yfir það hér á eftir og leiða að því rök að það sem stendur til að gera á Íslandi með gildistöku þessa frv. er nánast einstakt í heiminum þannig að hæstv. fjmrh. er ekki lítill karl,,, segir hæstv. núv. landbrh. fyrir rúmlega einu ári.
Og hann segir á öðrum stað, með leyfi forseta: ,,Öllum mönnum ætti að vera auðskilið að menn þurfa að borða hver sem launin eru og eftir því sem þau eru lægri eru þessar brýnustu lífsnauðsynjar, þær sem koma fyrst í röðinni, þyngri og þyngri.``
Það er að lokum eitt enn sem mig langaði til að vitna til. Það væri auðvitað hægt að halda uppi löngu máli um söluskatt á matvæli. Hér segir hæstv. núv. landbrh., með leyfi forseta:
,,Ég tel því, herra forseti, að það sé nánast sama hvernig litið er á þessa matarskatta. Þeir eigi sér engar raunverulegar málsbætur sem standast nánari skoðun málsins. Það hafa engin skattaleg úrslitarök verið færð fram fyrir því að hér sé ekki hægt að hafa kerfi óbeinnar skattheimtu án þess að í því felist skattlagning á matvæli.``
Ég vildi fara fram á það við hæstv. fjmrh. að hann svaraði þeim spurningum sem ég hef hér fram borið, en hér er mjög löng og ítarleg ræða sem hæstv. núv. landbrh. flutti í lok desember 1987 um matarskattinn og væri freistandi að vitna frekar í hana. Hann tekur fyrir öll OECD-löndin svokölluðu og lýsir því hvernig óbeinir skattar eru lagðir á í þeim löndum og það kemur í ljós að það er hvergi lagður þvílíkur skattur á matvæli. Hann er í hæsta lagi um 9% í Evrópubandalagslöndunum. Og hann segir nokkuð annað í lok ræðu sinnar sem ég vil enn og aftur vitna til, með leyfi forseta, því að í því er fólginn mikill sannleikur: ,,Auðvitað verður þar að taka mið af hlutum eins og lífsafkomu fólks, aðstöðu fólks.`` Og hann spyr í lok ræðu sinnar: ,,Af hverju er ekki stefnt á Íslandi, ef menn ætla að skattleggja matvörur á annað borð, sem ég er andvígur, en ef menn ætla að gera það, af hverju er þá ekki stefnt á tvö þrep hvort heldur sem er í söluskatti eða virðisaukaskatti, matvöruna t.d. upp í 2 eða 4% og restina upp á 24, 25 eða 28% ef menn þurfa með til þess að ná inn tekjum? Hvað er svona flókið við það? Hvað er svona óréttlátt við það? Hvað er svona óskilvirkt við að taka þá upp t.d. svoleiðis kerfi?`` Og hann segir áfram: ,,Ég vil fá svör við því vegna þess að mér dugar ekki að það þurfi að einfalda hlutina og það eigi að leggja 25% söluskatt á allar matvörur og aðrar lífsnauðsynjar og síðan eigi að taka upp virðisaukaskatt á næsta ári.``
Ég vildi mjög gjarnan heyra hvað þessum málum líður, þ.e. niðurfellingu matarskattarins eins og yfirlýsingar alþýðubandalagsmanna gengu út á í þessari hv. deild og Nd. líka um þær mundir sem við ræddum matarskattinn, og ítreka enn og aftur afstöðu Kvennalistans, að við höfum frá upphafi lýst okkur algjörlega andvígar matarskattinum og styðjum að sjálfsögðu alla þá viðleitni sem fram kemur til að lækka hann og helst af öllu að afnema hann með öllu.