Fjármálaráðherra (Ólafur Ragnar Grímsson):
Virðulegi forseti. Ég vona að hv. þm. Júlíus Sólnes láti ekki eiginkonu sína eina um matarinnkaupin heldur taki virkan þátt í þeim sjálfur og hafi þannig góða aðstöðu til þess og aðrir sem á þurfa að halda.
Ástæða þess að ég kvaddi mér hljóðs aftur var fyrst sú að gera örstutta athugasemd við söguskoðun sem kom fram hjá hv. þm. Guðmundi Ágústssyni. Hann lagði út af því skjali sem Framsfl. og Alþfl. höfðu komið sér saman um þegar þeir hófu viðræður við okkur alþýðubandalagsmenn sérstaklega og buðu einnig Kvennalistanum til slíkra viðræðna í septembermánuði og síðan var rætt við Borgfl. með ýmsum hætti í kjölfarið. Það skjal bar þess merki að þessir tveir flokkar höfðu fyrir fram gert sér grein fyrir því hvað af stefnumálum okkar alþýðubandalagsmanna þurfti að hafa í huga þegar komið var til slíkra viðræðna og sýndi einfaldlega pólitískan þroska og djúpan skilning og ágætan undirbúning þessara tveggja flokka að þeim viðræðum. Þess vegna gengu þessi mál svo greitt fyrir sig að það var á tæpum tveimur vikum hægt að ljúka þeim. Þetta fundust mér ekkert óeðlileg vinnubrögð vegna þess að þingflokkur Alþfl. hafði á fundi sínum á Hallormsstað, þriggja daga fundi í lok ágústmánaðar og byrjun septembermánaðar, gert ítarlega grein fyrir því hver væru þau efnisatriði í efnahagsmálum sem við lögðum höfuðáherslu á. Það lá alveg ljóst fyrir í þeim tillögum sem Alþfl. og Framsfl. lögðu fyrir upp úr miðjum septembermánuði að þeir höfðu rækilega kynnt sér þær tillögur, enda voru þær þeim sendar eins og ýmsum öðrum forustumönnum í íslenskum þjóðmálum. ( GA: En hvers vegna stóð Alþb. ekki við yfirlýsingarnar frá Hallormsstað?) Við stóðum við þær velflestar, hv. þm. Guðrún Agnarsdóttir, en eins og ég sagði áðan þegar þingmaðurinn var fjarverandi hefur það verið lýðræðislegur vilji íslensku þjóðarinnar að flokkar mynduðu samsteypustjórnir og gerðu málamiðlanir sín á milli vegna þess að íslenska þjóðin hefur ekki lýst þeim lýðræðislega vilja sínum að einn flokkur fengi allt sitt fram í stjórn landsins heldur kosið flokka í þeim stærðarhlutföllum að þeir yrðu að gera málamiðlanir. Það hefur einfaldlega verið okkar afstaða að þar mundum við vega og meta hvað næðist fram og hvað ekki og taka síðan afstöðu til þess. Það var ýmislegt sem við náðum ekki fram. Ég nefndi hér áðan t.d. þegar þingmaðurinn var fjarverandi úrsögn úr NATO og brottför hersins sem eru líka stefnumál Alþb. þannig að matarskatturinn er út af fyrir sig ekkert einn á báti í þessum efnum. ( SalÞ: Er hann aukaatriði?) Nei, nei. Hann er ekkert aukaatriði frekar en hitt. En ég vænti þess að hv. þm. Salome Þorkelsdóttur sé líka kunnugt um að eðli íslenskra stjórnmála er einfaldlega þannig að flokkar gera málamiðlanir sín á milli og þeir þingmenn sem telja sig sérstaklega umkomna þess að gera grín að því eða lýsa furðu sinni eins og hér hefur m.a. gerst í umræðunum yfir afstöðu okkar í matarskattinum hafa að mínum dómi ekki lotið þeim lýðræðislega vilja þjóðarinnar að flokkarnir eigi að gera málamiðlanir.
Vilji íslenska þjóðin að einn flokkur framkvæmi alveg sína stefnu kýs hún flokkinn til þess með meiri hluta. Það er eðli lýðræðisins. Það er ekki okkar, sem eigum öll það sameiginlegt að þjóðin hefur ekki falið neinum okkar flokki meirihlutavald á Alþingi, að setja okkur á svo háan hest gagnvart þjóðinni að segja: Við viljum ekki málamiðlanir. Við viljum allt okkar eða ekkert. Þar erum við að setja okkur yfir lýðræðislegan vilja þjóðarinnar. Í þessu felst minn lýðræðislegi skilningur, mitt grasrótarlýðræði ef ég má orða það þannig. Grasrótin krefst málamiðlana vegna þess að þannig velur hún á þeim vettvangi þar sem hún ein hefur allan rétt, þ.e. í kosningum.
Þess vegna taldi ég nauðsynlegt að það kæmi alveg skýrt fram að sá texti sem lagður var til grundvallar myndun þessarar ríkisstjórnar var svo vel undirbúinn af hálfu þessara tveggja flokka að við í Alþb. fundum strax í honum margar af þeim hugmyndum sem við höfðum lagt áherslu á og gagnrýnt fráfarandi ríkisstjórn fyrir að fylgja ekki. Það var líka skynsamlegt að þessir tveir flokkar, Alþfl. og Framsfl., gerðu þetta fyrst sjálfir vegna þess að þeir voru að koma út úr ríkisstjórn með þriðja flokknum þar sem önnur stefna hafði verið við lýði.
Ég hef kannski haft um þetta fleiri orð en ég ætlaði mér vegna frammíkalla því að tilefnið var eingöngu að láta þetta koma skýrt fram. En ég vil svo líka taka undir ýmislegt af því sem hv. þm. Júlíus Sólnes sagði um virðisaukaskattinn. Mér hefur fundist í mörg ár að umræðan um virðisaukaskattinn á Íslandi drægi fyrst og fremst dám af erlendum aðstæðum, erlendri löggjöf og erlendri umræðu um það mál án þess að skoða beinlínis grundvöll þeirrar skattlagningar í íslensku hagkerfi og m.a. með tiliti til landfræðilegrar legu þjóðarinnar og eðlis utanríkisviðskipta okkar.
Það er fróðlegt að fylgjast með því hvaða röksemdir hafa verið færðar fram fyrir virðisaukaskattinn í gegnum tíðina. Í eina tíð var t.d. aðalröksemdin að virðisaukaskatturinn mundi að verulegu leyti koma í veg fyrir skattsvik sem væru töluverð í söluskattinum. Reynslan annars staðar frá sýnir hins vegar því miður að svo er ekki. Norðmenn hafa t.d. framkvæmt á því ítarlegar athuganir hvernig skattsvik þróast engu að síður, jafnvel í ríkara mæli, innan
virðisaukaskattskerfisins. Um tíma voru líka forustumenn íslensks iðnaðar sem gerðu virðisaukaskattinn að sömu kröfu til þess að iðnþróun gæti átt sér stað hér í landinu með hliðstæðum hætti og annars staðar í Evrópu. Þessi röksemd hefur hins vegar vikið þó nokkuð til hliðar sérstaklega eftir að farið var að endurgreiða verulegan hluta söluskatts til iðnaðar og sjávarútvegs. Margar af þeim röksemdum sem í upphafi voru notaðar fyrir virðisaukaskattinum hafa alls ekki sama gildi í dag.
Ég hef stundum sagt það í kannski hálfgildings alvöru að nafnið á skattinum hafi fleytt honum mikið áfram vegna þess að það er jákvætt, virðisaukaskattur, gefur til kynna fyrir þá sem ekki þekkja eðli hans að
hann sé einhvers konar virðisviðbót við það sem fyrir er þar sem aftur á móti aðrir skattar gefa það til kynna að þeir taki eitthvað af. Það er nú einu sinni eðli okkar máls að ef heitin eru góð vinna þau fyrir málin. Þess vegna hafði ég m.a. orð á því hér áðan að mér fyndist þingið ekki hafa gert sér nægilega grein fyrir því að tilkoma virðisaukaskattsins hefur í för með sér verulega aukningu starfsmanna í skattkerfinu, hvort sem um eitt þrep er að ræða eða tvö, og enn frekari aukningu ef um tvö þrep er að ræða en eitt. Og af því að þingið er alltaf að gagnrýna fjölgun opinberra starfsmanna, að ýmsu leyti með réttu, er nauðsynlegt að horfast líka í augu við þetta. Eigi að framkvæma þennan vilja þingsins hefur það í för með sér töluvert mikla aukningu starfsmanna. Annars er stórfelld hætta á því að gildistaka þessa skatts brotni í framkvæmdinni og þá er verr af stað farið en heima setið.
Þessi atriði öll getum við væntanlega rætt í þeirri samstarfsnefnd sem ég fjallaði um áðan og ætlaði mér að setja upp síðar í þessum mánuði, en ég er alveg reiðubúinn í almenna umræðu um virðisaukaskattinn, kosti hans og galla ef vilji þingsins er að byrja á núlli í þeim efnum. Svo er hins vegar ekki og þingið hefur ákveðið að þessi skattur eigi að koma og ég hef þess vegna talað um skyldu mína að undirbúa gildistöku hans. Hitt er alveg hárrétt hjá hv. þm. Júlíusi Sólnes að það gæti verið mjög gagnlegt að fara enn á ný yfir það með opnum huga hvers vegna Íslendingar hafa ákveðið að taka upp virðisaukaskatt og hvort sumar af þeim röksemdum kunna kannski að vera byggðar á misskilningi eða hvort menn geta náð sama markmiði með minni tilkostnaði og beitt þá röksemdum sem e.t.v. eru í meira samræmi við önnur markmið. Það er varla tilefni til þess að ræða það hér, en þingflokkunum öllum gefst tækifæri til þess á næstu mánuðum að skoða það.