Skúli Alexandersson:
Herra forseti. Það er greinilegt að ég hef misst af góðum fyrirlestri í stjórnmálafræði, fékk þó svolítinn hluta af því áðan um hvernig menn skuli standa að myndun ríkisstjórnar og hvernig okkar pólitíska kerfi sé uppbyggt, að þjóðin hafi bundið okkur í þá fjötra að við getum ekki haft nema mjög takmörkuð prinsip. Við skulum ekki byggja upp svo ákveðna flokka með ákveðnum málefnum að við séum ekki tilbúin og verðum ekki vegna þjóðarinnar okkar, sem aldrei vill gefa neinum flokki meiri hluta, að gefa eftir af sjónarmiðum okkar og baráttumálum.
Mér finnst ekki vera hægt að taka undir þessa kenningu og þess vegna er ég kominn upp þó að formaður míns flokks og ráðherra þeirrar ríkisstjórnar sem ég styð hafi verið að lýsa þessu sem pólitískri nauðsyn í okkar þjóðfélagi. Ég tel m.a. að Alþb. hefði alls ekki átt að fara inn í núverandi ríkisstjórn undir þeim kvöðum sem við þurftum að fara þangað inn undir, þ.e. með því að hafa ekki samningsrétt fyrir launþegasamtök og með því að fá ekki bætta þá launaskerðingu sem fyrri ríkisstjórn hafði komið á. Vitaskuld verður alltaf að búa við það í lýðræðisþjóðfélagi að ýmsar málamiðlanir eigi sér stað, en til þess er flokkakerfi í landinu, til þess eru þessar undirstöðustofnanir, sem eru pólitísku flokkarnir, að þeir standi ákveðinn vörð um grundvallarsjónarmið sinna flokka. Hægt er að segja að nauðsyn brjóti lög í einstaka tilfellum og það gerist, en það þarf að yfirvega mjög þegar gengið er --- ekki vil ég kannski segja gengið yfir grundvallarsjónarmið sem hver flokkur hefur. Pólitíska munstrið í þjóðfélagi eins og okkar er svo breitt að það verða alltaf myndaðar ríkisstjórnir og á að vera hægt að mynda ríkisstjórnir án þess að hlutirnir gangi á þann veg að flokkar sleppi frá sér grundvallarprinsippum. Ég vil aðeins láta þetta koma fram.