Virðisaukaskattur
Þriðjudaginn 14. mars 1989

     Skúli Alexandersson:
    Herra forseti. Talan 14 hefur verið kær í munni sumra, en ég hélt að alþýðuflokksmennirnir hefðu ekki beinlínis tekið ástfóstri við hana vegna þess að það hefur fyrst og fremst verið Sjálfstfl. sem hefur verið að veifa þessu og ekki eingöngu sem afkvæmi Alþb. Mig minnir að Alþfl. hafi átt einhvern hlut að þessu líka. ( KP: Frá hvaða tíma var það?) Er þetta ekki allt afkvæmi Ólafslaga? ( KP: Já.) Ég held að Alþfl. hafi staðið fremstur í því að koma þeim lögum á. ( KSG: Það er hægt að breyta lögunum.) Vitaskuld er hægt að breyta lögum, en söm er gerðin að koma slíkum lögum á þar sem 14 kjaraskerðingar koma út úr gerðinni. Ég ætla að skila þessu til föðurhúsanna. Það er Alþfl. sem fyrst og fremst er höfundur að þessum 14 kjaraskerðingum en ekki Alþb. Ég ætla svo sem ekkert að fara að hvítþvo Alþb., að það hafi ekki gert ýmsa hluti. Eins og hv. þm. sagði: stjórnmálamenn og pólitískir flokkar þurfa alltaf að standa frammi fyrir að gera einhverja hluti sem eru ekki eins góðir og þeir vildu. Það er aftur á móti þó nokkuð mikið matsatriði hvenær gengið er svo langt að það sé verið að gera svo vonda hluti að gengið sé yfir stefnu viðkomandi flokks. Það held ég að hafi verið gert í haust hjá sumum.