Dómsmálaráðherra (Halldór Ásgrímsson):
Herra forseti. Ég mæli hér fyrir frv. til laga um breytingu á áfengislögum sem flutt var í hv. Nd. og varðar í meginatriðum tvö atriði. Þar er annars vegar um að ræða breytta stöðu sveitarfélaga vegna hinna nýju sveitarstjórnarlaga og hins vegar atriði sem tengjast gildistöku ákvæða lagabreytinga frá síðasta Alþingi að því er varðar áfengt öl.
Um frv. var samstaða í hv. Nd. og lítils háttar breyting gerð við meðferð málsins þar. Ég sé ekki ástæðu til að rekja það frekar við þessa umræðu en vil að henni lokinni leggja til að málinu verði vísað til hv. allshn. og 2. umr.