Eyjólfur Konráð Jónsson:
Herra forseti. Þessi athugasemd hæstv. forseta er ekki algerlega eðlileg við þetta tilefni því að hér í deildinni eru nánast engir stjórnarþingmenn. ( Gripið fram í: Jú, þeir eru fjórir.) Að hinu leytinu er það auðvitað rétt að það yrði lítið úr þinghaldi ef það væri ekki fyrir stjórnarandstöðuna því hún reynir þó að koma einhverju góðu til leiðar. Mál ríkisstjórnarinnar eru hins vegar yfirleitt svo endanlega vitlaus að þeir sameinast varla um þau nema kaupa sér eitt eða tvö atkvæði einhvers staðar fyrir fáránlega hluti í löggjöf. En ég fagna því að hv. þm. Salome Þorkelsdóttir, okkar fyrri forseti, tekur eftir þessu og vekur á því athygli að hér eru venjulega miklu fleiri stjórnarandstæðingar en stjórnarmenn sem greiða fyrir málum. --- [Fundarhlé.]