Áfengislög
Miðvikudaginn 15. mars 1989

     Frsm. allshn. (Jón Kristjánsson):
    Herra forseti. Um þá brtt. sem hér liggur fyrir þarf ekki að hafa mörg orð. Það féll niður í nál. að breyta gildistökuákvæði laganna, en gert er ráð fyrir því að þau taki gildi 1. jan. 1969. Sá tími er liðinn og því er lagt til að því verði breytt og greinin orðist þannig: ,,Lög þessi öðlast þegar gildi.``