Verðbréfaviðskipti
Miðvikudaginn 15. mars 1989

     Árni Gunnarsson:
    Herra forseti. Það frv. sem hér er til umræðu er ákaflega veigamikið og ég get tekið undir flest af því sem hv. síðasti ræðumaður sagði um það hversu nauðsynlegt væri að hraða afgreiðslu þessa máls. Hv. fjh.- og viðskn. þessarar deildar hefur lagt mikla vinnu í að skoða frv. og ég get ekki neitað því að það kom mér mjög á óvart eftir að nefndin hafði afgreitt frv. og það síðan farið til hv. fjh.- og viðskn. Ed. að lesa á baksíðu Morgunblaðsins að gerð hefði verið breyting í þeirri nefnd á einu veigamesta ákvæði þeirra breytinga sem fjh.- og viðskn. þessarar deildar hafði gert á frv. og fjallar um bindiskyldu verðbréfasjóða og hámörkun á vöxtum. Það kann vel að vera að þessi ákvæði bæði eigi heima í seðlabankalögum. Um það ætla ég ekki að dæma. Hins vegar er það nánast með ólíkindum að samskipti nefnda á milli tveggja deilda skuli vera svo lítil að nefndarmönnum, í þessu tilviki í fjh.- og viðskn. Nd. skuli ekki hafa verið gert viðvart um þessa veigamiklu breytingu.
    Ég vil áður en ég tek frekari afstöðu til þessa máls fá að sjá þær breytingar sem fyrirhugaðar eru í sambandi við seðlabankalögin og snerta þessa þætti báða tvo. Ég tel að hér séu á ferðinni áhrifamiklir þættir til stjórnunar á þessum verðbréfamarkaði eins og ég skynja hann og skil hann og tel að það sé nánast út í hött að geta verið með bindiskylduákvæði á allt bankakerfið í landinu og hugsanleg ákvæði um hámörkun á vöxtum en að slík ákvæði séu ekki til um verðbréfasjóðina í landinu sem þá gætu leikið lausum hala utan við bankakerfið og væntanlega og að öllum líkindum boðið mun betri kjör en bankakerfið, sem nú á undir högg að sækja, gæti boðið.
    En ég tel það alveg nauðsynlegt að hér komi fram mjög skýrar upplýsingar um hvernig fyrirhugað er að afgreiða þessa þætti og hvenær það verði gert. Að öðrum kosti tek ég undir með hv. formanni fjh.- og viðskn. að það ber til þess brýna nauðsyn að nefndin fái þetta mál aftur eins og hún lagði mikla áherslu á að fá þessa tvo veigamiklu þætti inn í frv.