Árni Gunnarsson:
Herra forseti. Nokkur orð vegna orða hv. þm. Þorsteins Pálssonar.
Ég verð að segja honum eins og er að oft hafa þingmál verið lengur á leiðinni í gegnum þingnefndir og þingið en þetta stóra og mikla mál um verðbréfasjóði. Ég fæ ekki skilið hvernig hann getur með fullum rétti staðið hér upp og talið það ámælisvert hversu hægt að hans mati þetta mál hefur gengið í gegnum hv. fjh.- og viðskn. Ég hefði talið að fyrr hefði þurft en nú er verið að gera að setja löggjöf um verðbréfasjóði hér á landi. Og það hefði staðið nær ýmsum öðrum mönnum en þeim sem nú tala fyrir hönd fjh.- og viðskn. í þessari umræðu að gera það fyrr.
Það sem er auðvitað vandinn í þessu máli er að þeir menn, sem börðust fyrir því að fá bindiskylduákvæðin og hámarksvaxtaákvæðin inn í þetta frv., eru ekki alveg sáttir við það að þessi ákvæði verði tekin inn í seðlabankalögin. Það er túlkunaratriði af hálfu lögfræðinga hvort þau eigi betur heima inni í þessum lögum eða í seðlabankalögunum sjálfum. Það hlýtur því hver maður að skilja að hv. fjh.- og viðskn. þessarar deildar hlýtur að bregða nokkuð í brún þegar jafnveigamikill þáttur í jafnveigamiklu frv. er tekinn út af hálfu hv. fjh.- og viðskn. Ed., orðalaust og án þess að nokkurt samráð sé haft við hv. fjh.- og viðskn. Nd. um málið.
Ég verð einnig að lýsa þeirri skoðun minni að hv. fjh.- og viðskn. Nd. hafi unnið mjög gott starf við það að yfirfara frv. Það þurfti ýmissa breytinga við, ekki bara efnisbreytinga heldur og orðalagsbreytinga í stórum stíl. Í þetta fóru margir fundir nefndarinnar og í henni var gott samstarf. Ég vil t.d. gjarnan þakka samstarf við hv. þm. Matthías Bjarnason, sem hér talaði áðan, og öruggt og gott samstarf sem við áttum við aðra hv. stjórnarandstæðinga. Ég segi líka, eins og hæstv. viðskrh. sagði áðan, að það er mjög ánægjulegt að stjórnarandstaðan skuli styðja þetta mál af jafnmikilli eindrægni og einhug og komið hefur fram hér í umræðunum í dag. Þetta er mikilsvert mál og það er mikilsvert að það nái fram að ganga hið skjótasta. Ég tek algjörlega undir það. Og það dettur engum manni í hug sem hér hefur talað af hálfu stjórnarsinna að bregða fæti fyrir þetta frv. á einn eða annan hátt. Hér er fyrst og fremst um að ræða tæknilegt atriði sem ég vildi vekja athygli á fyrir mína hönd vegna þess að ég taldi óeðlilega að þessu staðið, að flytja þessa brtt. á þann hátt sem hv. fjh.- og viðskn. Ed. hefur gert.
Að öðru leyti mun ég ekki ræða þetta mál og ekki standa því fyrir þrifum eða standa að því að það tefjist hér í þessari umræðu.