Erfðalög
Miðvikudaginn 15. mars 1989

     Guðrún Helgadóttir:
    Virðulegur forseti. Ég vil nota þetta tækifæri til þess að þakka hæstv. dómsmrh. fyrir framlagningu frv. og jafnframt hæstv. fyrrv. dómsmrh. sem gerði slíkt hið sama.
    Ég held að hér sé hreyft einhverju mesta þjóðþrifamáli sem lengi hefur komið fram hér á hinu háa Alþingi. Þetta frv. varðar alla landsmenn endanlega. Ég flutti hér á tveim þingum, ég held að það sé rétt hjá mér að það hafi verið löggjafarþingin 1983--1984 og 1984--1985, frv. til laga um breytingu á erfðalögum til að afnema það hróplega óréttlæti sem hefur viðgengist allt þar til lögin nr. 29 frá 1985 tóku gildi, að niðjar látins maka gætu haft næstum full forráð yfir búi eftirlifandi foreldris síns.
    Ég fagna því jafnframt að hér hefur verið litið til stjúpbarna líka. Á sínum tíma skrifaði ég um það margar blaðagreinar að ég teldi að það væri afar óheppilegt að stjúpbörn hefðu enn frekar í hendi sér yfirráð yfir eigum stjúpforeldris síns en börn hefðu yfir eigum foreldra sinna beggja og yrði það síst til þess að bæta sambúð hálfsystkina. Allt var þetta fyrirkomulag til stórskaða að ég held fyrir fjölmargar fjölskyldur í landinu. Ég tel að mér sé óhætt að segja hið sama og oft hefur komið fram áður, m.a. hjá einum meðflm. frv., hv. 6. þm. Reykv. Guðrúnu Agnarsdóttur, að fá frumvörp hafa vakið eins almenna athygli og flutningsmenn fengið eins margvísleg viðbrögð eins og þegar þetta mál var í gangi hér á tveimur þingum.
    Ég fagna því þess vegna ákaflega að þetta frv. skuli fram komið og hv. Ed. skuli vera búin að afgreiða það til þessarar hv. deildar og treysti því að hv. allshn. flýti afgreiðslu þessa máls svo að það nái að verða að lögum á þessu þingi. Ég hygg að margir muni að því loknu bera hlýjan hug til hins háa Alþingis, aldrei því vant.