Viðskiptaráðherra (Jón Sigurðsson):
    Hæstv. forseti. Fyrirspyrjandi spyr hvort hlutabréf ríkisins í Útvegsbanka Íslands séu til sölu og ef svo sé þá á hvaða kjörum og með hvaða skilmálum.
    Eins og fram kom í máli fyrirspyrjanda var á sl. ári skipuð þriggja manna nefnd til þess að kanna möguleika á sölu hlutabréfanna. Nafnverð hlutabréfa ríkissjóðs í Útvegsbankanum hf. eru 764 millj. kr., en auk þess á Fiskveiðasjóður hlutabréf að andvirði 200 millj. kr. Nefndin átti að hafa þrennt til viðmiðunar í sínu starfi við sölu bréfanna eða undirbúning sölu á þeim. Í fyrsta lagi skyldi salan byggjast á því að gott verð fengist fyrir bréfin, og mér er engin launung á því að nafnverð bréfanna er allt of lágt verð fyrir þau. Í öðru lagi skyldi salan stuðla að sameiningu bankastofnana og innlánsstofnana. Í þriðja lagi skyldi með sölunni leitast við að dreifa eignaraðild að bankanum eftir því sem kostur væri.
    Eins og fram kemur í því sem ég hef þegar sagt sneri nefndin sér strax til starfandi hlutafélagabanka og Sambands sparisjóða og kynnti þeim erindi sitt, tilkynnti þeim jafnframt að hún vildi kanna sölu hlutabréfanna til samsteypu tveggja eða fleiri banka eða innlánsstofnana. Ég tel það liggja í eðli máls að við þessar aðstæður sé eðlilegt að ætlast til þess að þær bankastofnanir og innlánsstofnanir, sem hafa áhuga á að eignast þessi bréf með þessum skilmálum, hafi um það frumkvæði og sýni það framtak því að í þessum viðskiptum geta falist miklir möguleikar til hagræðingar og eflingar þessara lánastofnana.
    Frá því þetta var hafa, eins og fram hefur komið í fréttum, farið fram viðræður milli ýmissa þessara bankastofnana um sameiningu og jafnframt hafa forsvarsmenn þeirra lýst yfir áhuga sínum á kaupum á a.m.k. meiri hluta í hlutabréfum Útvegsbankans. Það hefur verið í fréttum, sérstaklega síðustu daga, að um alllanga hríð hafi farið fram viðræður á milli fulltrúa bankaráða Alþýðubankans og Verslunarbankans, einmitt um möguleika þess að mynda nýja bankastofnun með samruna við Útvegsbankann í einhverri mynd. Á sama tíma er líka ljóst að Iðnaðarbankinn hefur áhuga á samruna við Verslunarbankann og gagnkvæmt, þó að ekki hafi enn tekist að mynda um þetta ákveðin samtök eins og ég tel vera forsendu fyrir því að hlutabréf ríkisins í Útvegsbanka Íslands verði seld.
    Nefndin hefur ekki haft bein afskipti af þessum viðræðum um sameiningu bankastofnana en hún hefur fylgst með þeim, beðið átekta. Ég hef einnig haft samband við bæði bankastjóra og formenn bankaráða í þessum bönkum sem ég hef nefnt. Nefndin hefur líka með aðstoð sérfróðra manna kannað hvert sé verðmæti hlutabréfanna. Einmitt þessa daga þegar haldnir eru aðalfundir ýmissa þessara hlutafélaga má ætla að línurnar skýrist í þessu efni. En engir eiginlegir samningar um sölu hlutabréfanna hafa enn hafist og engar beinar tölur verið nefndar um söluverð né söluskilmála og þeir ekki tilgreindir umfram það sem fram kom í erindisbréfinu.
    Mitt svar við fyrirspurninni er því það að

hlutabréfin séu til sölu. Á þessu stigi sé salan bundin þeim skilyrðum að hún stuðli að sameiningu bankastofnana. Ég get svo bætt því við að mér finnst að smæð og fjöldi banka hér á landi sé efnahagslífinu fjötur um fót og því þurfi að sameina þessar stofnanir í færri, sterkari og hagkvæmari einingar. Þá liggur auðvitað beinast við að beita sölu hlutabréfa í Útvegsbankanum til þess að draga saman smærri stofnanirnar. En ef svo fer að forsvarsmenn hlutafélagabanka og/eða sparisjóða bera ekki gæfu til að ná samkomulagi um slíkt samstarf eða samruna, þá verð ég náttúrlega að afturkalla umboð þessarar nefndar og láta í þess stað gera mat á kostum þess að sameina þær bankastofnanir sem ríkið ræður fyrir, þ.e. ríkisbankana annan hvorn eða báða og Útvegsbankann.