Upplýsingaöflun kjararannsóknarnefndar
Fimmtudaginn 16. mars 1989

     Fyrirspyrjandi (Karl Steinar Guðnason):
    Frú forseti. Ég hef leyft mér að bera fram fsp. um málefni kjararannsóknarnefndar. Ástæðan er sú að ekki hafa borist upplýsingar frá fjmrn. um launagreiðslur ríkissjóðs er varða félagsmenn Alþýðusambands Íslands. Starf kjararannsóknarnefndar er mjög þýðingarmikið, ekki aðeins fyrir aðila vinnumarkaðarins heldur líka þjóðfélagið sjálft og er það mjög slæmt ef ekki fást upplýsingar frá ríkinu, það er slæmt fordæmi og það er slæmt vegna þess að áreiðanleiki útgefinna upplýsinga verður ekki sem skyldi.
    Það tókst að fá þessar upplýsingar fyrir fyrsta ársfjórðung 1987 og þriðja og fjórða ársfjórðung 1987 og fyrsta ársfjórðung 1988 og síðan ekki meir. Það hefur verið óskað eftir þessu hvað eftir annað en það hefur ekki gengið. Ég vænti þess að hægt verði að ráða bót á þessu.
    En fsp. er svohljóðandi:
    ,,Hvers vegna fær kjararannsóknarnefnd ekki aðgang að upplýsingum um launagreiðslur ríkissjóðs er varða félagsmenn Alþýðusambands Íslands?``
    Óska ég eftir að fjmrh. svari því.