Upplýsingaöflun kjararannsóknarnefndar
Fimmtudaginn 16. mars 1989

     Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir:
    Virðulegi forseti. Ég fagna því að þessi fsp. er komin fram hér á Alþingi. Ég held að það hafi verið 12 ár sem ég var formaður Sóknar og ég verð að segja það eins og er að ég veit ekki til að upplýsingar um mitt fólk hafi nokkurn tíma verið hjá kjararannsóknarnefnd. Ég gerði margítrekaðar tilraunir til að fá þetta þarna í gegn, en það var aldrei. Mig langar eiginlega að spyrja fyrirspyrjanda: Leggur Reykjavíkurborg eða önnur stór sveitarfélög inn nokkrar upplýsingar hjá kjararannsóknarnefnd? Þetta gerir það að verkum að ég hef verið að agnúast út í kjararannsóknarnefnd. Ég tel það alrangt að vitnað sé í útreikninga sem nefnd gerir sem ekki hefur stærstu láglaunahópana inni. Og ég vil bæta þeirri fyrirspurn við þessa fyrirspurn hans: Skila Reykjavík eða aðrir stórir kaupstaðir gögnum yfir sitt starfsfólk?