Upplýsingaöflun kjararannsóknarnefndar
Fimmtudaginn 16. mars 1989

     Fyrirspyrjandi (Karl Steinar Guðnason):
    Frú forseti. Það er nú reyndar svo að Reykjavíkurborg skilaði ekki þessum gögnum. Það var unnið að því í kjararannsóknarnefnd að fá þessi gögn. Það tók nokkurn tíma en þau mál eru komin í lag nú. En það er ekki fyrr en á þessu ári sem það gerist. Það var í miklu ólagi en verður framvegis í lagi.