Fasteignamat og brunabótamat
Fimmtudaginn 16. mars 1989

     Fyrirspyrjandi (Alexander Stefánsson):
    Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir fsp. sem ég hef lagt fyrir fjmrh. um samræmt kerfi fyrir fasteignamat og brunabótamat í landinu. Tildrög þess eru þau að 1983 skipaði þáv. félmrh. nefnd til að endurskoða matskerfi fasteignamats og brunabótamats, uppbyggingu þeirra og framkvæmd. Verkefni nefndarinnar í sambandi við endurskoðun matskerfa fasteignamats og brunabótamats var einnig að gera tillögur um að samræma grundvöll matsins, jafnframt hvernig mögulegt væri að eitt matskerfi gilti fyrir allar fasteignir í landinu til afnota fyrir almennar upplýsingar um fasteignir vegna fasteignagjalda, brunatrygginga, kaups og sölu, lántöku o.s.frv.
    Í nefnd þessari voru Pétur Stefánsson verkfræðingur, sem var formaður, Garðar Sigurgeirsson viðskiptafræðingur, tilnefndur af Sambandi ísl. sveitarfélaga, Guttormur Sigurbjörnsson forstjóri, tilnefndur af Fasteignamati ríkisins, Héðinn Emilsson deildarstjóri, tilnefndur af Samvinnutryggingum, Ingi R. Helgason forstjóri, tilnefndur af Brunabótafélagi Íslands, og Kristinn Ó. Guðmundsson forstöðumaður, tilnefndur af Húsatryggingum Reykjavíkurborgar.
    Nefndin valdi sér heitið endurskoðunarnefnd matskerfa og hélt fjölmarga fundi, alls 62, og setti sér markmið í fyrsta lagi um hagræðingu, aukið öryggi, traustari matsgerðir, tíðari endurskoðun og aukið notagildi, nánari tengsl fyrir notendur.
    Þessi nefnd skilaði síðan af sér störfum síðari hluta árs 1985 og lagði fram ákveðnar tillögur bæði til skammtímalausnar eða til þess að flýta málinu og eins framtíðarlausn sem unnið yrði að þannig að eitt heildarmatskerfi yrði komið á hér á landi árið 1990. Það fylgdu þessu frá nefndinni ótal frumvörp og þáv. ríkisstjórn 1986 gerði ráð fyrir að þetta mál næði fram að ganga. Þess vegna spyr ég fjmrh. nú hvað líði þessu starfi og hvenær megi vænta ákvörðunar stjórnvalda um samræmt matskerfi og hvað líði undirbúningi sjálfstæðra fagstofnunar eins og nefndin lagði til.