Fyrirspyrjandi (Alexander Stefánsson):
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. fjmrh. fyrir það sem kom fram í hans máli. Ég er í engum vafa um að hér er um að ræða eitt mesta og besta mál í sambandi við hagræðingu í því kerfi sem við búum við. Við höfum rekið okkur á það í gegnum tíðina og það var eiginlega upphaf þeirrar nefndarskipunar sem ég greindi frá t.d. í sambandi við Vestmannaeyjagosið og í sambandi við hin hörmulegu snjóflóðaslys sem urðu bæði á Patreksfirði og Norðfirði kom það í ljós að hús hlið við hlið sem eyðilögðust í þessum skriðuföllum voru með svo ósamræmdu mati að eigendur sem urðu fyrir tjóninu urðu fyrir gífurlegu tjóni því að það gat munað allt að 100--300% á því mati sem í gildi var á viðkomandi húseign. Þetta var kveikjan að endurskoðun því að stjórnvöld á þeim tímum þurftu að gera alls konar fjármálaráðstafanir til að lagfæra þessi mál. En hitt stóð eftir: nauðsyn þess að samræma þetta, ekki aðeins í sambandi við tryggingar á verðmætum sem um er að ræða fyrir bæði fyrirtæki og einstaklinga heldur einnig í sambandi við opinberar lántökur, í sambandi við áætlanagerð og ýmislegt fleira. Ég vil aðeins segja það að lokum að skýrsla sú sem fyrrnefnd nefnd gaf út með ýmsum tillögum og framtíðarsýn er raunhæfur leiðarvísir og þó að hægt hafi gengið í þessum málum tel ég að það megi ekki standa fyrir framgangi þess, ekki síst í sambandi við Fasteignamat ríkisins sem er mikilvægast í þessu máli. Ég vona að orð ráðherra sem hann sagði hér verði til þess að þetta mál fái framgang.