Menntamálaráðherra (Svavar Gestsson):
Virðulegi forseti. Í fyrsta lagi er spurt: ,,Hafa skólastjórar grunnskóla gert fræðslustjórum grein fyrir hvernig tómstunda- og félagslífi var háttað í skóla þeirra á skólaárinu 1987--1988 skv. 4. mgr. 43. gr. grunnskólalaga?`` Svarið er já. Þetta er yfirleitt alltaf gert og það liggja fyrir skýrslur frá nær öllum skólum í landinu og það heyrir til algerra undantekninga ef ekki berast skýrslur af þessu tagi. Þær eru mjög misjafnar, misjafnar að gæðum og misjafnlega ítarlegar eins og gengur, en það heyrir til algerra undantekninga ef slíkar skýrslur berast ekki. Það hefur ekki verið unnið úr þessum skýrslum í heild nýlega, enda er það mikið verk, en ég er hér með undir höndum skýrslu frá grunnskólanum á Hallormsstað, grunnskólanum á Raufarhöfn, Ásgarðsskóla í Kjós, Laugarnesskóla í Reykjavík og Eiðaskóla, sem sagt fimm skýrslur sem ég mun afhenda hv. fyrirspyrjanda til fróðleiks. Þessar skýrslur voru teknar út úr bunkanum af algeru handahófi.
Í öðru lagi spyr hv. þm.: ,,Ef svo er, hverjar eru helstu niðurstöður?`` Almennt er hægt að segja að það sé um að ræða talsvert félags- og tómstundalíf í flestum skólum. Það er allt mögulegt sem kemur þar við sögu frá almennri íþróttastarfsemi af margvíslegu tagi, dansleikir, danskennsla, opið hús með alls konar tilboði af félagslífi, söngur, tónlist, blaðaútgáfa og hvað eina. Það er raunar mjög erfitt að segja að eitt standi þar sérstaklega upp úr umfram annað. En til þess að sjá það sem er í boði í þessu efni vænti ég þess að hv. þm. hafi einhvern tíma gefið sér tækifæri til þess að líta á þær sýningar sem skólarnir eru með af og til. Ég bendi núna á sýningu sem var opnuð um síðustu helgi í tilefni af 20 ára afmæli skólans í Breiðholti þar sem sýnd er margvísleg vinna sem nemendur hafa innt af hendi í tilefni af því afmæli og tengist bæði námi, starfi og leik og er satt að segja afar skemmtilegt. Ég hygg að svona metnaðarmiklar sýningar séu ótrúlega víða í skólum landsins og væri fróðlegt út af fyrir sig að taka saman yfirlit við tækifæri um það.
Hitt er ljóst líka að það er skóli og skóli þar sem þetta er slakt. Það getur stafað af ýmsum ástæðum, t.d. þeirri að fjármagn sé lítið og það sé aðeins ríkisframlag. Það virðist vera býsna algengt að sveitarfélög leggi mjög lítið til þessarar starfsemi. Önnur ástæða getur verið léleg félagsaðstaða. Ein ástæðan getur verið fámenni, að það sé erfitt að koma við starfsemi af þessu tagi, segjum í litlum skóla eins og einum sem er hérna skammt frá okkur og heitir Gaulverjabæjarskóli þar sem eru 16 nemendur, svo ég nefni dæmi. Þetta getur líka verið það að skólastjórar eða kennarar viðkomandi skóla kunni ekki nægilega vel til verka við að skipuleggja félagslíf. Þess hygg ég að séu einnig dæmi. Ég nefni ekki áhugaleysi skólastjórnenda eða kennara sem ástæður. Ég vona að það sé hvergi til.
Ég tel að ég hafi í rauninni svarað 3. fsp. líka, en í fjórða lagi spyr hv. þm. hversu mikið fé sé ætlað til tómstunda og félagsstarfs nemenda á þessu ári eða ár
hvert. Svarið er sem sagt að reglan er sú að ríkið greiðir til félagsstarfa nemenda að hámarki: a. Í skólum þar sem eru færri nemendur en 700 eru það 5 stundir á viku og síðan 3,7 stundir á viku á hverja 100 nemendur. b. Í skólum þar sem nemendur eru 700 eða fleiri eru þetta 4,4 stundir á viku á hverja 100 nemendur.
Auk þess er það oft þannig, en það er aftur á móti mjög misjafnt, að sveitarfélög greiða til félagsstarfa nemenda og ég hygg að það sé þessi viðbót sveitarfélaganna sem oft ræður úrslitum um hvort er um sæmilega myndarlegt starf að ræða. Það er vandi að svara þeirri spurningu hversu mikið fé fer úr ríkissjóði í þessu skyni á ári hverju. Ég hef þó reynt að nálgast þá tölu. Niðurstaða minna samstarfsmanna er sú að hún sé 42--44 millj. kr. á ári sem ríkið borgar beint í þessu efni. Til að menn hafi eitthvað til samanburðar má benda á að í síðasta fyrirspurnatíma ræddum við um skólabúðirnar í Reykjaskóla sem talið er að kosti alls um 17 millj. kr. á ári þannig að þó að þetta sé lítið í hverjum stað er það þó nokkur heildarupphæð sem varið er í þessu skyni.
Í fimmta lagi er spurt hverjir annist sérstaklega þennan þátt skólastarfsins og hvaða menntun hafa þeir. Svarið er að langoftast eru það kennarar sem hafa áhuga og reynslu í félags- og tómstundastarfi sem sinna þessu, en það er einnig algengt að skólastjórar sinni þessum störfum, einkum í hinum allra minnstu skólum. Sums staðar hafa félagsmiðstöðvar það verkefni að annast hluta af félagsstarfi skólanna, þess eru dæmi, og við þær starfar áhugafólk sem hefur iðulega ágæta sérmenntun eða fyrst og fremst almennan áhuga.
Auk þess sem hér hefur verið nefnt hefur menntmrn. beitt sér fyrir sérstöku átaki í því skyni að efla og bæta félagslíf og félagsstörf í skólum landsins. Það hefur verið gert með því að sérstakur kennari hefur verið sendur á vegum ráðuneytisins í flesta eða alla skóla í fyrravetur og í vetur til að fara yfir málin, bæði með þeim hætti að hann hefur hitt að máli alla kennara og þá nemendur sem hafa með félagslíf að gera í viðkomandi skólum. Þarna hefur verið tekið mjög margt upp í þessari fræðslu, bæði almenn félagsmálastarfsemi og úr því hv. þm. óskaði eftir því að það yrði einnig tekið fyrir sem ekki væri
bundið tíðarandanum vil ég gleðja hv. þm. með því að þarna eru líka kenndir gömlu dansarnir.
Að öðru leyti hef ég margt um þetta mál að segja, en vænti þess að ég hafi svarað fsp. og bið forseta að afsaka hvað ég tók langan tíma.