Tómstunda- og félagsstarf í grunnskólum
Fimmtudaginn 16. mars 1989

     Menntamálaráðherra (Svavar Gestsson):
    Virðulegi forseti. Út af þessu síðasta, þá er það einmitt það sem við höfum verið að gera að halda námskeið fyrir kennara út af félagslífi sérstaklega. Það eru stutt námskeið, kannski einn, tveir, þrír dagar, en það er verið að vinna í því og þannig nálgumst við þessi mikilvægu verk, allt frá gömlu dönsunum og yfir til einhvers annars.
    Varðandi það sem hv. þm. svo sagði sem er aðalatriðið í þessu: Ef verið er að tala um lengri skóladag, aðallega fyrir yngstu börnin, þá hlýtur sá skóladagur að byggjast að talsverðu leyti upp á félagsstarfi og leik en ekki hefðbundinni stundaskrárvinnu. Þess vegna er alveg augljóst mál að sá þáttur sem hv. þm. er hér að tala um hlýtur að koma með mjög miklu vægi inn í þær ákvarðanir sem verður að taka á næstunni um lengingu skóladagsins. Það er augljóst mál. Þess vegna mun þessi þáttur fá mikið meira vægi í hinu almenna skólastarfi á komandi árum, sérstaklega grunnskólans, en hann hefur haft á undanförnum árum.