Fjármálaráðherra (Ólafur Ragnar Grímsson):
Virðulegi forseti. Eins og fram kom í umræðum hér á Alþingi í desember þegar ákveðið var að fresta gildistöku laga um virðisaukaskatt kom í ljós að undirbúningur vegna þeirrar gildistöku reyndist mun flóknari og tímafrekari en ætlað var.
Ég vil reyndar nota þetta tækifæri til að vekja athygli hv. Alþingis á þeirri staðreynd að gildistaka virðisaukaskattsins mun hafa í för með sér allverulega aukningu á starfsmönnum í íslenska skattakerfinu og mér finnst e.t.v. nokkuð á það skorta að hv. Alþingi eða ýmsir aðrir hafi gert sér nægilega vel grein fyrir því að nauðsynlegt er, eigi framkvæmdin að takast vel, að reiða fram fjármagn í allnokkra fjölgun starfsmanna. Ég segi þetta vegna þess að yfirleitt eru menn fljótari að gagnrýna fjölgun opinberra starfsmanna en samþykkja að samhliða ákvörðunum þingsins getur oft verið óhjákvæmilegt að fjölga starfsmönnum.
Ég greindi jafnframt frá því í desember og vil endurtaka það hér að ætlunin væri að setja á laggirnar samstarfsnefnd þingflokkanna allra til að fylgjast með þeirri vinnu sem tengist gildistöku virðisaukaskattsins. Ég hef ætlað mér síðar í þessum mánuði að ræða við forustumenn þingflokkanna um þann hátt sem þingflokkarnir vilja hafa á skipun þessarar samstarfsnefndar.
Fyrir fáeinum dögum varð umræða í hv. Ed., þar sem virðulegur fyrirspyrjandi situr, um virðisaukaskattinn. Því miður var hann fjarverandi þá umræðu þótt hann auki ætíð virðuleika og umræðuþyngd deildarinnar að öllu jöfnu og þess vegna er óhjákvæmilegt að ég endurtaki kannski nokkuð af því sem ég sagði þá.
Ég hef átt allnokkra fundi með embættismönnum fjmrn. og embættismönnum ríkisskattstjóra til að skipuleggja þá vinnu sem nú er hafin til undirbúnings gildistöku virðisaukaskattsins. Í því sambandi má nefna að Kjartan Jóhannsson hefur skilað mjög gagnlegri skýrslu til fjmrh. Hann var formaður nefndar sem vann að þessu máli og skipuð var af fyrrv. ríkisstjórn. Nefndin sem slík skilaði ekki áliti, en formaður nefndarinnar hefur lagt fram mjög myndarlegt og vel unnið álit.
Þá hefur nokkur umræða verið um hvort eigi að taka upp fleiri en eitt þrep í virðisaukaskattinum og sú umræða heldur áfram. Ég hef hins vegar ákveðið að tæknilegur undirbúningur gildistöku skattsins verði á þann veg að hvort heldur geti hann verið með einu þrepi eða fleirum. Ég ræddi nokkuð kosti og galla þess í hv. Ed. að hafa virðisaukaskattinn í einu þrepi eða fleirum og vísa til þeirrar umræðu sem þar fór fram. Einnig má segja að það séu ýmis önnur álitamál stjórnmálalegs eðlis sem nauðsynlegt sé að leiða til lykta áður en endanlega er hrint í framkvæmd lokaundirbúningi vegna gildistöku skattsins.
Ég vænti þess að á næstu mánuðum geti bæði þessi tæknilega vinna og sú stjórnmálaumræða sem þarf að fara fram bæði innan núv. hæstv. ríkisstjórnar og í samstarfsnefnd þingflokkanna sem ég lýsti áðan
farið fram og skilað þeirri niðurstöðu að fyrir lok þessa þings verði hægt að afgreiða frv. sem felur í sér sumar af þeim breytingum sem nauðsynlegt kann að verða að gera á virðisaukaskattinum. Hins vegar getur þurft lengri tíma til að vega og meta kosti þess að taka upp fleiri en eitt þrep í virðisaukaskattinum, en það mun væntanlega skýrast á næstunni.
Ég vil svo segja það að lokum í tilefni af nokkrum setningum sem féllu hjá hv. fyrirspyrjanda að mér hefur stundum fundist nokkuð á það skorta að menn gerðu sér grein fyrir því að virðisaukaskatturinn er ekki gallalaus frekar en aðrir skattar. Menn hafa kannski um of horft á kosti hans. Hann mun hafa það í för með sér að framteljendum mun stórfjölga. Skattakerfið verður mun umfangsmeira í framkvæmd. Starfsliðinu þarf að fjölga, skriffinnskan mun aukast allverulega þannig að ýmsar þær neikvæðu hliðar sem oft eru nefndar þegar menn gagnrýna hið opinbera munu sjást skýrar þegar virðisaukaskatturinn hefur tekið gildi. Hins vegar hefur hann ýmsa kosti sem tíundaðir hafa verið þegar hann var afgreiddur á hv. Alþingi. Mér finnst hins vegar nauðsynlegt að menn hafi í huga að nokkrir bögglar fylgja þó þessu skammrifi.