Fyrirspyrjandi (Guðmundur Ágústsson):
Herra forseti. Á þskj. 532 legg ég fram fsp. til fjmrh. um Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins. Fsp. er á þessa leið:
,,1. Er í undirbúningi breyting á lögum um Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins er geri ráð fyrir aðild starfsmanna Sinfóníuhljómsveitar Íslands að sjóðnum?
2. Má búast við að frv. þessa efnis verði lagt fram og afgreitt á þessu þingi?``
Eftir úrskurð stjórnar Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins kom í ljós að starfsmenn Sinfóníuhljómsveitar Íslands áttu ekki aðild að sjóðnum. Í túlkun laganna um lífeyrissjóðinn skorti heimild í þeim til að starfsmenn sinfóníuhljómsveitarinnar ættu aðild. Í kjölfar þessa úrskurðar lofaði þáv. menntmrh., Birgir Ísl. Gunnarsson, að fá þessu breytt og var samið frv. í ráðuneytinu og sent fjmrn. Mun núv. hæstv. menntmrh. einnig hafa lofað starfsmönnum hljómsveitarinnar þessari breytingu. Á einhverju virðist samt standa hvernig sem á því getur staðið.
Hér er um réttlætismál að ræða og að vonum eru starfsmenn sinfóníuhljómsveitarinnar orðnir mjög óþolinmóðir. Mikil nauðsyn er á að breyting þessi nái fram að ganga á þessu þingi því stjórn Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins hefur gefið starfsmönnunum frest fram í júní, annars verða þeir að færa áunnin réttindi sín yfir í annan sjóð.