Fjármálaráðherra (Ólafur Ragnar Grímsson):
Virðulegi forseti. Á árinu 1987 óskaði stjórn Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins eftir lögfræðilegu áliti á því hvort hljóðfæraleikarar og aðrir starfsmenn Sinfóníuhljómsveitar Íslands eigi rétt til aðildar að Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins. Niðurstaða álitsins var sú að ótvíræð lagaheimild til þess að starfsmenn sinfóníuhljómsveitarinnar væru í lífeyrissjóðnum væri ekki fyrir hendi og þessu ástandi yrði ekki breytt nema með lagabreytingu.
Í tilefni af þessu máli og fjölda annarra álitamála ákvað stjórn lífeyrissjóðsins að láta semja frv. um breytingu á lögum um sjóðinn og skyldi frv. taka til tæknilegra atriða svo sem aðildarskilyrða og annarra þeirra atriða sem aðilar að sjóðsstjórninni, þ.e. fulltrúar fjmrn. og fulltrúar BSRB og BHMR, yrðu sammála um. Samið var frv. í samræmi við framangreinda niðurstöðu og meðal þeirra atriða sem full samstaða var um var að Sinfóníuhljómsveit Íslands ætti aðild að sjóðnum. Hins vegar reyndist á lokastigi undirbúningsvinnunnar ekki nást samstaða um öll þau atriði sem þetta mál snertir m.a. vegna afstöðu annarra fulltrúa í stjórn lífeyrissjóðsins en fulltrúa fjmrn. Það er alveg rétt, sem hv. fyrirspyrjandi sagði, að af hálfu núv. menntmrh. hefur komið fram skýr og eindreginn vilji um að starfsmenn Sinfóníuhljómsveitar Íslands eigi aðild að lífeyrissjóðnum og mér finnst rétt að geta þess einnig að ég hef lýst því yfir við bæði stjórn Sinfóníuhljómsveitar Íslands og fulltrúa starfsmannafélagsins að ég er einnig þeirrar skoðunar að starfsmenn sinfóníuhljómsveitarinnar eigi að eiga aðild að lífeyrissjóðnum.
Til þess að koma fram þessari breytingu hefur verið unnið að endurskoðun á því frv. sem ég gat um áðan og í því eru einnig nokkur önnur atriði sem ráðuneytið telur til bóta að verði lögleidd. Þessari vinnu er nær alveg lokið og er ætlun mín að leggja þetta frv. fyrir Alþingi að loknum páskum. Vona ég að þingið verði þá við þeirri eindregnu ósk að afgreiða frv. fyrir þinglok þannig að starfsmenn Sinfóníuhljómsveitar Íslands geti frá og með miðju þessu ári verið fullgildir félagar í Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins.