Fyrirspyrjandi (Alexander Stefánsson):
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. fjmrh. fyrir þessi svör. Það kemur að sjálfsögðu til athugunar að láta sjómannasamtök í þessu landi gera þá kröfu til útgerðar að þeir noti sér þennan rétt þannig að þeir kaupi þessa flotvinnugalla í heildsölu og þannig geri þetta mögulegt. Hins vegar hefur það alls ekki legið fyrir. Ég verð að segja það alveg eins og er að mér þótti það ákaflega dapurlegt að verða vitni að því að Siglingamálastofnun hefur ekki viljað viðurkenna þessi öryggistæki, ekki hvað síst þegar hvert tilfellið á fætur öðru er til staðar sem sannar það að þessi útbúnaður getur bjargað mannslífum. Það liggja hér fyrir um innflutta flotvinnugallann nákvæmar prófanir, sem hafa verið gerðar í Noregi, hvernig þetta reynist miðað við kuldastig í sjó og það er augljós reynsla þeirra sem hafa lent í þessum slysum að svona galli getur augljóslega bjargað mannslífum þar sem oft er um sekúndur eða mínútur að ræða ef menn eru í þessum göllum. Ég hef því miður eitt sorglegt dæmi um hvað þetta hefði getað gert ef viðkomandi sjómaður hefði verið í slíkum galla. Líka liggur fyrir að sá útbúnaður sem er aðallega notaður hér og er innfluttur hefur þá kosti að það er hægt að tvískipta honum. Það er hægt að nýta hann sem léttan vinnugalla sem líka getur varnað því að menn krókni við fyrstu snertingu í kaldan sjó og einnig hefur visst flotgildi jafnvel þó menn noti það aðeins vegna óþæginda af öllum gallanum í heild við ýmsa vinnu. En hvað snertir smábáta, sem eru fjölmargir, hundruð í kringum landið og jafnvel þúsundir, er það ekkert lítið mál að sjómenn sem þar eru, oft einir, noti þetta öryggistæki við störf á sjó því að það er búið bæði radarbúnaði, það er líka búið ljósabúnaði sem gerir það að verkum að björgun er oftast a.m.k. nær því að verða veruleiki eins og reynsla sýnir. En við megum ekki láta svona hindranir Siglingamálastofnunar koma í veg fyrir að við getum bætt öryggi þeirra sem sjóinn stunda að þessu leyti til.