Verndun hrygningarstöðva botnfiska
Fimmtudaginn 16. mars 1989

     Fyrirspyrjandi (Júlíus Sólnes):
    Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. sjútvrh. fyrir greið og góð svör. Það er ástæða til að sem fyrst verði tekin til umfjöllunar og umræðu hér á hinu háa Alþingi mál sem þessi, þ.e. hvaða stefnu við eigum að móta okkur í framtíðinni um verndun fiskistofna og viðkvæmra svæða umhverfis landið. Það hefur verið varpað fram þeirri hugmynd hvort ekki sé orðið tímabært að setja svokallaða togveiðilandhelgi umhverfis allt landið. Ég vil ítreka það, sem ég sagði áðan í framsögu minni, að ég held að við ættum að taka okkur meiri tíma til að ræða um verndun fiskistofna og með hvað hætti við getum mótað skynsamlega fiskveiðistefnu sem tekur mið af því að byggja upp fiskistofnana og vernda uppeldis- og hrygningarstöðvar þeirra. Ég held að allt of mikill tími hafi farið í að úthluta kvótum og semja löggjöf um með hvað hætti eigi að deila niður fiskveiðiheimildum á milli togskipa. Ég held að það væri nær að sinna þessum þætti betur.