Menntastofnun á sviði matvælaiðnaðar
Fimmtudaginn 16. mars 1989

     Fyrirspyrjandi (Jón Kristjánsson):
    Virðulegi forseti. Á 109. löggjafarþingi árið 1986 var flutt till. til þál. um menntastofnun á sviði matvælaiðnaðar, hótel-, veitinga- og almennrar ferðamannaþjónustu. Flm. þessarar till. voru Davíð Aðalsteinsson, Haraldur Ólafsson, Jón Kristjánsson og Stefán Guðmundsson. Þessari till. var vísað til ríkisstjórnarinnar þann 18. mars 1987 á 109. löggjafarþingi. Þar sem 1. flm. þessarar þáltill. á nú ekki sæti á þingi lengur flyt ég fyrirspurn á þskj. 593 til menntmrh. um meðferð þessarar þáltill., hvort unnið hafi verið að þessum málum á vettvangi ríkisstjórnarinnar á því tímabili sem liðið er síðan og þá með hverjum hætti ef svo hefur verið. Ég vil taka það fram að till. var ekki samþykkt sem ályktun Alþingis heldur var henni vísað til ríkisstjórnarinnar til athugunar eins og títt er með slíkar tillögur.
    Það er óþarfi að hafa um þetta fleiri orð. Fyrirspurnin er gerð til að fá upplýst hvort hefur farið fram starf á vettvangi ríkisstjórnar á þessu sviði eða hvort það séu áform um slíka vinnu á næstunni.