Guðmundur G. Þórarinsson:
Virðulegi forseti. Aðeins örfá orð. Ég vil þakka 1. flm. fyrir einkar fróðlega framsögu með þessari tillögu og reyndar þarfa og góða tillögu. Ég hygg að þau mál sem hér er um að ræða séu með nokkuð ólíkum hætti á hinum mismunandi stöðum á landinu. Ef ég skil þessa tillögu rétt fjallar hún auðvitað fyrst og fremst um verndun grunnvatnsins, verndun vatnsbólanna og að skipulag umhverfis þau taki mið af slíkri nýtingu sem þar er um að ræða. Þar eru sjálfsagt hin ýmsu byggðarlög og hinir ýmsu þéttbýliskjarnar nokkuð misjafnlega á vegi staddir.
Við búum þannig Íslendingar að við eigum víðast hvar á landi feiknarlegt magn af fersku vatni, þó að það sé reyndar mismunandi eftir landshlutum, og mengun er tiltölulega lítil hjá okkur miðað við það sem víða þekkist þar sem þéttbyggðara er. Landið er stórt og úrkomusvæðin eru mikil. Byggðin er dreifð, líklega um 5,2 íbúar á km 2.
Ég missti af byrjun ræðu 1. flm. en í mínum huga vakna tvær spurningar þegar ég les þessa tillögu. Ef Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að beita sér fyrir því sem hér er um að ræða, og ég tek undir að er afar þarft verk, þá vaknar spurningin um kostnað. Gera flm. ráð fyrir að ríkið taki að sér þann kostnað sem þessum rannsóknum og kortlagningu fylgja, eiga sveitarfélögin að gera það eða er þar um einhvers konar samvinnu að ræða? Jafnframt hlýtur að vakna sú spurning hversu hratt þetta verk er unnið því að sjálfsagt er það misbrýnt eftir byggðakjörnum að taka á málinu. Það kann að vera, þó að ég hafi það nú ekki í huga, að hér geti orðið um glettilega kostnaðarsamt verk að ræða ef ráðist væri á þetta allt saman í heild eins og fyrir liggur. Vatnstaka Íslendinga er talsvert mismunandi eftir landshlutum. Ég hygg að á tertíer-svæðunum sé ekki mikið vatn unnið úr sjálfum berggrunninum heldur er meira um að vinna vatnið úr áreyrum eða undan skriðum. Á yngri svæðum landsins eru jarðlögin mjög lek og þar er unnt að vinna grunnvatn eiginlega hvar sem er. Að vísu hafa jarðlög og gamall berggrunnur brotnað upp á sumum eldri svæðum landsins og nýjar sprungur leiða víða mjög vel.
Flm. vék sérstaklega að vandamálum á Reykjanesi. Ég held að Reykjanesið sé alveg sérstakt fyrirbrigði í vatnstöku Íslendinga. Það á sér enga hliðstæðu aðra þar sem grunnvatnslinsan liggur ofan á sjó. Þessi grunnvatnslinsa er afar viðkvæm. Hún er sennilega um 50 metra þykk um mitt nesið og víðast hvar ekki nema svona 10--12 metra þykk við ströndina. Jafnvel þó að ekki væri um að ræða mengun, sem við höfum reyndar rekið okkur talsvert á núna og vatnsmál Reyknesinga eru því mjög í brennidepli þessa stundina, þá er vatnstaka mjög viðkvæm úr þessari linsu vegna þess að ef of miklu er dælt drögum við sjó undan linsunni og það er mjög erfitt að hreinsa vatnsbólin eftir það, getur jafnvel tekið áratugi. Þar gilda að ýmsu leyti önnur sjónarmið gagnvart vatnstökunni en víðast hvar annars staðar vegna þess að afrennslið er heldur ekki mikið, víðast hvar líklega
eingöngu um að ræða úrkomu hverju sinni sem varðveitist í þessari linsu þó að reyndar séu uppi mismunandi kenningar um það mál.
Segja má að nýting á grunnvatninu hafi eiginlega komist á nýtt svið með auknu fiskeldi hér á landi, sérstaklega með seiðaeldi undanfarin ár. Ef stefnt verður að mjög mikilli aukningu á ferskfiskseldi, silungseldi, víða um landið erum við komin inn á alveg nýtt svið, bæði þar sem vatnsneyslan verður miklu, miklu meiri en menn höfðu séð áður þar sem dælt er út hundruðum sekúndulítra jafnvel hjá einu fyrirtæki og jafnframt vegna þess að frárennslið frá slíkum fyrirtækjum getur valdið mengun á vatnasvæði og grunnvatni ef ekki er rétt á haldið. Þannig að þar er einmitt um sérstök mál að ræða, ekki bara mengunin heldur hversu mikið vatn er tekið því að hæð grunnvatnsspegilsins víða er auðvitað háð annars vegar hversu miklu dælt er og hins vegar úrkomu á svæðinu.
Ég held að þessi tillaga sé mjög þörf. Ég held reyndar að á sumum svæðum, til að mynda í Reykjavík, sé nú glettilega góð yfirsýn yfir vatnsverndarsvæðin og þar fylgjast menn með. En einmitt vegna þess hversu jarðlögin eru gljúp, sérstaklega á jarðfræðilega yngri svæðum landsins, og sprungur eru víða er meiri hætta á mengun grunnvatnsins en víðast annars staðar.
Ég hygg að hér sé, eins og ég hef áður sagt, um góða tillögu að ræða. Menn þurfa hins vegar að velta þessu fyrir sér í nefnd og með nánari umfjöllun um hvernig menn vilja skipta kostnaði, hvaða kostnað er um að ræða og hver skuli bera hann. Jafnframt hygg ég að skynsamlegt væri að menn gerðu einhverja tímaáætlun um hversu hratt verkið er unnið og hvar brýnast er að ráðast að þessu máli. Á sumum stöðum gæti a.m.k. til að byrja með nægt að fyrir lægju ákvarðanir um að ráðast í slíka framkvæmd áður en útfærsla á stærra skipulagi kæmi til þannig að fjármálin væru samræmd framkvæmdum hverju sinni.