Guðmundur Ágústsson:
Virðulegi forseti. Ég kveð mér hljóðs utan dagskrár í tilefni fréttar sem birtist í dagblaðinu Tímanum sl. þriðjudag og í Morgunblaðinu í gær og fyrradag þess efnis að bankaábyrgð sem Alþýðubankinn setti fyrir olíufarmi í eigu Olíuverslunar Íslands hafi utanríkisviðskiptabanki Sovétríkjanna hafnað.
Samkvæmt fréttinni í Tímanum barst skeyti sl. föstudag frá Sovétríkjunum þess efnis að þeir viðurkenndu ekki ábyrgð Alþýðubankans og óskuðu þess í stað eftir ábyrgð Útvegsbankans. Þá segir í sömu frétt að Alþýðubankinn hafi farið þess á leit við Útvegsbankann að hann ábyrgðist olíukaupin gegn því að Alþýðubankinn baktryggði þau. Þessu hafi Útvegsbankinn neitað á þeirri forsendu að Útvegsbankinn sé ekki í þessum málum Olís og Alþýðubankans.
Morgunblaðið segir þennan sama dag, sl. þriðjudag, að ástæða synjunar Sovétmanna sé sú að Alþýðubankinn hafi ekki bein fjárhagsleg tengsl við sovéska banka. Í Morgunblaðinu í gær er það hins vegar haft eftir ráðuneytisstjóra viðskrn. að sovéski bankinn hafi einungis gert athugasemd við ábyrgð Alþýðubankans á grundvelli þess að hann hafi ekki verið viðurkenndur í Sovétríkjunum sem viðskiptabanki. Ábyrgð Alþýðubankans var því ekki hafnað, eins og kom fram í fréttinni daginn áður, heldur var einungis gerð athugasemd við ábyrgðina. Vakna af þessu tilefni ýmsar spurningar um olíuviðskipti við Sovétríkin og bankaábyrgðir þeim tengdar. Vil ég því beina eftirtöldum spurningum til hæstv. viðskrh.:
Í fyrsta lagi: Er í samningi viðskrn. við Sovétmenn um olíukaup ákvæði þess efnis að aðeins ákveðnir bankar geti sett bankaábyrgðir? Ef svo er, hvaða banka er þarna um að ræða og hvaða skylda hvílir á þeim gagnvart öðrum bönkum og fyrirtækjum að greiða fyrir viðskiptum í Sovétríkjunum?
Í öðru lagi: Eru einhverjar ástæður til að efast um getu Alþýðubankans til að standa undir þeim skuldbindingum sem hann tekst á herðar fyrir Olís?
Í þriðja lagi: Hefur viðskrn. komið á framfæri við hinn sovéska banka upplýsingum um Alþýðubankann sem leitt geti til þess að hann verði viðurkenndur í olíuviðskiptum við Sovétríkin?
Í fjórða lagi: Má ekki treysta því að ábyrgð banka, sem starfar eftir íslenskum bankalögum með eftirliti Seðlabanka, sé örugg og á hana treystandi?
Í fimmta og síðasta lagi: Er hæstv. viðskrh. kunnugt um ástæður synjunar Útvegsbanka Íslands á þeirri málaleitun Alþýðubankans að veita Olís bankaábyrgð með baktryggingu Alþýðubankans?
Það kemur í sjálfu sér ekkert á óvart að mál þetta skjóti upp kollinum og sé gert að fjölmiðlamat, svo mikið hefur Olís verið í fréttum á undanförnum mánuðum. Mann undrar hins vegar að það skuli hafa verið minnsti banki landsins sem rétti Olís hjálparhönd á örlagastundu þegar fyrirtækið fékk neitun um fyrirgreiðslu hjá Landsbankanum. Aðrir bankar treystu sér ekki til þess eða réttara sagt þorðu ekki að taka
Olís í viðskipti.
Það er í hæsta máta óeðlilegt að fyrirtæki á borð við Olís, sem veltir 3,5 milljörðum á ári, skuli ekki eiga innangengt í ríkisbanka. Ljóst er að fyrirtæki af þessari stærðargráðu getur ekki starfað með eðlilegum hætti nema það eigi aðgang að traustum banka. Að stærri bankarnir neiti viðskiptum er íhugunarefni fyrir okkur þingmenn og þjóðina alla. Ef ástæðan er sú að eiginfjárstaðan sé slæm eða fyrirtækið stundi óeðlileg viðskipti væri afstaða þeirra skiljanleg. Því er ekki til að dreifa varðandi Olís. Þvert á móti gengur reksturinn vel og eiginfjárstaðan er traust. Ef slíkt fyrirtæki getur ekki fengið eðlilega fyrirgreiðslu í bankakerfinu er einhver brotalöm í því kerfi sem stjórnvöldum ber að athuga og leita svara við.
Af þessu tilefni leitar sú spurning á hugann hvort hugsanlegt sé að einhverjir menn, hópar eða klíkur, hafi óeðlileg ítök í bankakerfinu og geti haft um það áhrif hverjir fái fyrirgreiðslu og hverjir ekki, hvort þeir geti beitt bankakerfið þrýstingi til að knésetja samkeppnisaðila þeirra og með því móti náð yfirburðaaðstöðu í viðskiptalífinu. Um það hefur maður haft grun, en eftir að hafa kynnt mér þetta Olísmál er grunur minn ekki lengur fyrir hendi.